Líkamsþjálfun og kyrrseta unglinga: Áhrif álags og meiðsla á brottfall úr íþróttum

Æfingaálag í íþróttum hefur aukist í gegnum árin hjá börnum og unglingum. Rannsóknir sýna að tengsl eru milli aukins æfingaálags og meiðsla. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða áhrif æfingaálags á brottfall nemenda úr íþróttum í 10. bekk, ásamt því að skoða magn hreyfingar og kyrrsetu þeirra. Ran...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Harpa Sævarsdóttir 1989-, Margrét Helga Hagbarðsdóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21504
Description
Summary:Æfingaálag í íþróttum hefur aukist í gegnum árin hjá börnum og unglingum. Rannsóknir sýna að tengsl eru milli aukins æfingaálags og meiðsla. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða áhrif æfingaálags á brottfall nemenda úr íþróttum í 10. bekk, ásamt því að skoða magn hreyfingar og kyrrsetu þeirra. Rannsóknin er af svipuðu sniði og flestar aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi en hún skoðaði fleiri atriði svo sem hreyfingu nemenda, sjúkraþjálfun, staðsetningu meiðsla og tegund meiðsla hjá nemendum á ákveðnu aldursbili. Spurningalisti var lagður fyrir 84 nemendur í þremur grunnskólum á Íslandi. Spurningalistinn innihélt almennar spurningar, spurningar um hreyfingu, kyrrsetu, íþróttaþátttöku og meiðsli. Niðurstöður sýndu að æfingaálag og of margar æfingar voru ein af þremur algengustu ástæðum brottfalls nemenda úr íþróttum. Þeir nemendur sem stunduðu skipulagðar íþróttir voru 69,0% af þátttakendum. Einnig kom í ljós að meirihluti nemenda fannst ekki vera tækifæri til staðar að æfa minna og án keppni. Um 90% nemenda hafði fundið fyrir meiðslum og höfðu 47,6% farið til sjúkraþjálfara vegna þess. Því oftar sem nemendur æfðu í viku því meiri hreyfingu stunduðu þeir fyrir utan æfingar og skólaíþróttir. Íþróttaþátttaka virðist draga úr kyrrsetu nemenda, en þó sýndu niðurstöður rannsóknarinnar einnig að tengsl eru milli æfingaálags og brottfalls úr íþróttum. Mikilvægt er því að horfa til æfingaálags barna og unglinga til að minnka líkur á meiðslum og brottfalli úr íþróttum. Intensive training in children and teenage sports is becoming more common in recent years. Studies have shown a relationship between the intensity and injuries. The purpose of this study was to examine the effects of intensity on the drop out rate from sports in 10th grade, as well to see the amount of activity and sedentary behavior. This study is similar to other studies in Iceland except she specifically looks at details such as student exercise, physical therapy, location of injury and what kind of injury the students have during a ...