Summary: | Matvælatengdir sjúkdómar í mönnum af völdum Shiga toxín myndandi Escherichia coli (STEC) eru vel þekktir um allan heim. STEC eru meinvirkar bakteríur sem geta valdið niðurgangi sem og öðrum alvarlegum sjúkdómum í mönnum á borð við blæðandi ristilbólgu (e. haemorrhagic colitis) og rauðkornasundrunar- og nýrnabilunarheilkennis (e. haemolytic uraemic syndrome). Margar sermisgerðir tilheyra STEC en sú algengasta og best þekkta er Escherichia coli (E. coli) O157:H7. Tilvikum af völdum non-O157 STEC hefur fjölgað mikið og þau sem aðallega hafa verið tengd við alvarlegustu sjúkdómana tilheyra sermisgerðum O26, O45, O103, O111, O121 og O145. Helstu meinvirkniþættir STEC eru shiga toxín 1 og/eða 2 (stx1/stx2) og intimin (eae). Náttúrulegir hýslar STEC eru hús- og villidýr, einkum jórturdýr sem skilja út bakteríurnar í umhverfið með saur. Oft má því rekja uppruna sýkinga í mönnum til nautgripa og afurða þeirra. Á Íslandi greinast reglulega stök tilfelli af E. coli O157:H7 í mönnum en hópsýkingar hafa ekki komið oft upp. STEC sýkingar hafa ekki verið stórt vandamál hér á landi en fáar rannsóknir hafa verið gerðar til að staðfesta það. Markmið þessarar rannsóknar var að setja upp rauntíma PCR aðferð til að kanna útbreiðslu sjö aðal STEC af sermisgerðunum O26, O45, O103, O111, O121, O145 og O157 í dýrum, matvælum, vatnssýnum og í mönnum. Aðferðin byggist á tveimur tilbúnum rauntíma PCR prófum frá Bio-Rad, iQ-Check STEC VirX og SerO. Samhliða rauntíma PCR aðferðinni var gerð magngreining til samanburðar á hefðbundnum E. coli bakteríum í matvælum og vatnssýnum. Tekin voru alls 165 sýni; 50 dýrasaursýni úr nautgripum og kindum, 30 vatnssýni úr lækjum, frárennsli, sjó og skólpi, 40 hrá kjötsýni úr nautgripum, svínum og kindum, 10 sýni úr blönduðu grænmeti, fimm hrámjólkursýni úr nautgripum og 30 mannasaursýni. Sýnin voru sett í rauntíma PCR próf fyrir þremur helstu meinvirknigenum STEC (stx1, stx2 og eae). Ef genin voru til staðar voru sýnin prófuð áfram með öðru rauntíma PCR prófi sem getur greint sjö sermisgerðir STEC. ...
|