First North markaðurinn á Íslandi. Á að rýmka fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða á markaðnum?

First North markaðurinn á Íslandi er eina markaðstorg fjármálagerninga hér á landi. First North skiptist í hlutabréfamarkað, sem er starfræktur samhliða Aðalmarkaði Kauphallarinnar, og skuldabréfamarkað sem er, enn sem komið er, óvirkur. Hlutabréfamarkaður First North hefur alls ekki náð að standa u...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Steingrímur Eyjólfsson 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/21361
Description
Summary:First North markaðurinn á Íslandi er eina markaðstorg fjármálagerninga hér á landi. First North skiptist í hlutabréfamarkað, sem er starfræktur samhliða Aðalmarkaði Kauphallarinnar, og skuldabréfamarkað sem er, enn sem komið er, óvirkur. Hlutabréfamarkaður First North hefur alls ekki náð að standa undir þeim væntingum sem gerðar hafa verið til hans. Í þessari ritgerð verður farið í helstu ástæður fyrir því að svo er. Stærsta vandamál First North markaðarins er að lífeyrissjóðir verða samkvæmt lögum að flokka hlutabréfaeignir sínar á markaðnum sem óskráða eign og þar af leiðandi mega þeir einungis fjárfesta á markaðnum fyrir 20% af hreinni eign lífeyrissjóðanna. Umræður hafa átt sér stað á Alþingi hvort rýmka eigi fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða um 5% um svipað leyti og þessi ritgerð var skrifuð. Farið verður yfir helstu kosti og galla sem fylgja því að skrá félög á markað og bornir verða saman Aðalmarkaður Kauphallarinnar og First North markaðurinn og komið inn á það hvort að rétt sé að flokka hlutabréf á síðarnefnda markaðnum sem óskráð bréf.