Summary: | Í lokaverkefni þessu til B.Ed.-prófs við Háskólann á Akureyri , vorönn 2015, verður fjallað um athugun á því hvernig barn með einhverfu lærir boðskipti með PECS- aðferðarfræði. Í upphafi er að finna almennan kafla um einhverfu og greint frá þremur kennsluaðferðunum fyrir leikskólabörn með einhverfu. Greint verður frá TEACCH-aðferðarfræðinni, PECS- aðferðarfræðinni og Tákn með tali. Aðferðirnar eru allar mjög ólíkar en hafa allar það markmið að efla málþroska barns með einhverfu eða málörðugleika og auka boðskipti þess. Þá verður horft til einnar aðferðar og skýrt frá athugun á því hvernig slík aðferð er innleidd á leikskóla. Tilgangur þessa verkefnis er að reyna öðlast betri skilning á áhrifum PECS-aðferðarinnar í þjálfun samskipta, tjáningar og frumkvæðis hjá leikskólabarni með einhverfu og verður farið yfir athugun á PECS-aðferð. Þeirri aðferð var beitt yfir þriggja mánaða tímabil til að reyna að auka tjáningu, skilning og frumkvæði barns með einhverfu. Með því var einnig vonast til að hægt væri að koma barninu betur inn í verklag og vinnulag leikskólans um leið og hægt væri að koma betur til móts við þarfir þess og óskir. Athugunin var framkvæmd af starfsmönnum í leikskóla á Íslandi. Fyrst sýndi barnið miklar framfarir við þjáfun PECS-aðferðarinnar. Þegar beita átti aðferðinni og á fleiri sviðum en í upphafi kom í ljós að PECS-aðferðin ein og sér hentaði ekki barninu. Myndstýringu var því bætt við og barninu stýrt með myndum af starfsmanni. Notuð var samblanda af PECS-aðferð og myndstýringu. Þá fór barnið á ný að sýna framfarir í tjáningu, skilningi og frumkvæði. Það er mjög mikilvægt að börn með einhverfu fái rétta meðferð og þá kennsluaðferð semhentar þeim. Engir tveir einstaklingar með einhverfu eru eins og það getur tekið tíma að finna hvaða aðferð hentar hverju barni. Within this final thesis for a B.Ed. degree at the University of Akureyri, during the spring semester of 2015, autism spectrum disorder and teaching methods in preschool for children with autism will be the main topic. The first topic of ...
|