Summary: | Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Markmið þessarrar rigerðar er að fjalla um kennitölugreiningu út frá ársreikningum fyirirtækjanna Símans og Vodafone. Lögð er áhersla á að skoða samanburð á frammistöðu fyrirtækjanna út frá völdum kennitölum, milli ára og hvor fyrir sig, ásamt því að kanna hvort Síminn eða Vodafone sé fýsilegri fjárfestingarkostur út frá völdum kennitölum fyrirtækjanna. Ársreikningar fyrir árin 2013 og 2014 eru notaðir við útreikning á kennitölunum. Til að meta frammistöðu fyrirtækjanna og kanna hvort væri fýsilegri fjárfestingarkostur voru reiknaðar 16 kennitölur um arðsemi, greiðsluhæfni, skuldsetningu, nýtingu fjármagns og markaðsvirði. Kennitölurnar um arðsemi eru: Arðsemi heildarreigna, arðsemi eigin fjár og hagnaðarstig. Kennitölunar um greiðsluhæfi eru: Veltufjárhlutfall, lausafjárhlutfall og gæði hagnaðar. Kennitölunar um skuldsetningu eru: Skuldaþekja handbærs fjár frá rekstri, eiginfjárhlutfall og vaxtaþekja. Kennitölurnar um nýtingu fjármagns eru: Veltuhraði eigna, veltuhraði viðskiptakrafna og innheimtutími viðskiptakrafna og kennitölurnar um markaðsvirði eru: Hagnaður á hlut, V/H hlutfall og V/I hlutfall. Í ljós kom út frá kennitölugreiningunni að frammistaða beggja fyrirtækjan var betri fyrir árið 2014 og í samanburði á milli fyrirtækja var frammistaða Vodafone betri fyrir bæði árin. Við mati á hvort væri físilegri fjárfestingakostur Síminn eða Vodafone kom í ljós að Vodafone væri betri fjárfestingarkostur út frá kennitölanum fyrir bæði árin. Lykilorð: Ársreikningur, kennitölur, kennitölugreining, samanburður, fjárfestingarkostur. The objective of this thesis is ratios analysis of two Icelandic companies, Síminn and Vodafone. Information is taken from their financial statements from the years 2013-2014. The emphasis is on view a comparison of the performance of companies from the selected ratios, between years and respectively. Also it will be determined which company is a better investment opportunity from select ratios. The ...
|