Þátttaka starfsfólks í sameiningarferli. Rannsókn á sameiningu skattstofanna og Ríkisskattstjóra

Þessi ritgerð fjallar um þátttöku starfsmanna í sameiningarferli skattstjóraembættanna við embætti Ríkisskattstjóra. Ritgerðin er 30 eininga lokaritgerð til MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu og byggir á tilviksrannsókn. Rannsóknarspurningin er „Hvað einkennir þátttöku starfsfólks í breytingaferli vi...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Baldur Hrafn Björnsson 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20906
Description
Summary:Þessi ritgerð fjallar um þátttöku starfsmanna í sameiningarferli skattstjóraembættanna við embætti Ríkisskattstjóra. Ritgerðin er 30 eininga lokaritgerð til MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu og byggir á tilviksrannsókn. Rannsóknarspurningin er „Hvað einkennir þátttöku starfsfólks í breytingaferli við sameiningu skattstjóraembættanna við embætti Ríkisskattstjóra“. Tvær undirspurningar eru með ritgerðarspurningunni „Hvað kann að skýra þau einkenni?“ og „Á hvern hátt endurspeglar það hugmyndir um farsæla breytingastjórnun?“. Til að svara rannsóknarspurningunni voru tekin viðtöl við sex starfsmenn og einn stjórnanda hjá embætti Ríkisskattstjóra. Úrtakið var slembiúrtak, þar sem valdir voru af handahófi starfsmenn víðs vegar að hjá embætti Ríkisskattstjóra. Kenningar nýttar til að setja niðurstöðu viðtala í fræðilegt samhengi voru aðild starfsfólks, breytingastjórnun, forysta, umboðskenningin og ráðsmannskenningin. Helstu niðurstöður eru þær að þátttaka starfsmanna einkennist af víðtæku samráði við starfsmenn stofnunarinnar á stefnumótandi fundum, þar sem allir starfsmenn hafa tekið þátt en einnig af mikilli upplýsingagjöf til starfsmanna. Mögulegar skýringar á því samráði kunna að vera stjórnunarhættir innan stofnunar Ríkisskattstjóra sem ber einhver einkenni ráðsmannssambands samkvæmt ráðsmannskenningunni en einnig öflugri forystu. Sú aðild sem starfsfólk á að breytingaferlinu er í miklum samhljómi við hugmyndir um farsæla breytingastjórnun og hefur það mögulega áhrif á hversu mikið starfsmenn fá að koma að breytingaferlinu. This thesis discusses employee participation in organizational transformation when the 9 Inland Revenue Service in Iceland merged with Office of Directorate of Internal Revenue. The paper is 30 ECTS thesis for Master of Public Administration and builds upon a case study research. The research question is “What are the characteristic features of employee participation in organizational transformation when the institutions of Inland Revenue Service and Institution of Directorate of Internal ...