Samspil hlutafélagavæðingar ríkisrekstrar og einkavæðingar. Hvað hefur breyst með tilkomu opinberra hlutafélaga?

Í ritgerðinni er fjallað um hlutafélagavæðingu ríkisrekstrar og hver tengslin eru við einkavæðingu. Annars vegar er fjallað um tímabilið frá árinu 1992 til ársins 2007 þegar hlutafélagavæðing hins opinbera og einkavæðing voru nokkuð nátengd fyrirbæri. Af 37 fyrirtækjum sem ríkissjóður einkavæddi á þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigrún María Einarsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20886
Description
Summary:Í ritgerðinni er fjallað um hlutafélagavæðingu ríkisrekstrar og hver tengslin eru við einkavæðingu. Annars vegar er fjallað um tímabilið frá árinu 1992 til ársins 2007 þegar hlutafélagavæðing hins opinbera og einkavæðing voru nokkuð nátengd fyrirbæri. Af 37 fyrirtækjum sem ríkissjóður einkavæddi á þeim árum var hlutafélagavæðing undanfari ferilsins hjá 31 félagi. Árið 2006 voru hins vegar sett ákvæði um opinber hlutafélög í hlutafélagalög og frá þeim tíma hefur ekkert opinbert hlutafélag verið einkavætt. Í rannsókninni eru þessi tímabil skoðuð og ástæður þessara breytinga kannaðar. Ritgerðin byggir að mestu leyti á fyrirliggjandi gögnum en jafnframt voru tekin hálf-stöðluð eigindleg elítuviðtöl við fjóra aðila. Þá var unnið út frá kenningu um nýskipan í ríkisrekstri og umboðskenningum. Niðurstöður ritgerðarinnar leiddu í ljós að ástæður þess að opinber hlutafélög hafa hingað til ekki verið einkavædd eru meðal annars aðstæður í samfélaginu og fyrri einkavæðingar. Eftir árið 2006 hafa ríkjandi stjórnvöld ekki sýnt málinu mikinn áhuga sem meðal annars endurspeglast í þeim stjórnarsáttmálum sem liggja til grundvallar. Markmiðið með opinberum hlutafélögum var að auka sveigjanleika og þau geta verið heppilegt rekstrarfyrirkomulag ef rétt er staðið að málum. This thesis looks at the corporatization of governmental institutions in Iceland and its association with privatization. The first period covered is 1992-2007 during which time corporatization and privatization within the public sector were closely linked. During that time 31, out of 37 partially or fully state owned entities, were privatized following corporatization. A legislation on state owned enterprises entered into force in 2006. Subsequently, no state owned enterprises have been privatized. The thesis also covers this period of time and the possible reasons for this change pondered. Applied research methods were qualitative, including secondary data analysis and four semi-structured elite interviews. Theories of new public management and principal-agent ...