Mælingar á veggþykkt hálsslagæða, æðaþani og mat á æðaskellum: Samanburðarransókn á tveim ómtækjum

Inngangur: Mælingar á æðaskellum og veggþykkt (IMT) hálsslagæða eru mikilvægar til að meta áhættu fyrir hjarta- og heilaáföllum. Þegar um vísindarannsóknir er að ræða þá er allur stöðugleiki í mælingum mikilvægur hvort sem verið er að mæla breytingar innan eða á milli einstaklinga. Því er nauðsynleg...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Björk Baldursdóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20860
Description
Summary:Inngangur: Mælingar á æðaskellum og veggþykkt (IMT) hálsslagæða eru mikilvægar til að meta áhættu fyrir hjarta- og heilaáföllum. Þegar um vísindarannsóknir er að ræða þá er allur stöðugleiki í mælingum mikilvægur hvort sem verið er að mæla breytingar innan eða á milli einstaklinga. Því er nauðsynlegt að mæla hvort breyting á mælingum hafi átt sér stað t.d. eftir hugbúnaðar uppfærslu eða tækjakaup. Í umræddu verkefni eru niðurstöður úr IMT og stífleikamælingum bornar saman á milli tveggja ómtækja. Mikilvægt er að bera saman mælingar tækjanna og ef marktækur munur finnst þarf að gera viðeigandi ráðstafanir eða leiðréttingar. Efni og aðferðir: Þátttakendur rannsóknarinnar voru 25 talsins og voru þeir allir ómskoðaðir fjórum sinnum, tvisvar á hvoru tækinu. Tækin voru af gerðunum Toshiba og Acuson. Þátttakendurnir voru valdir af handahófi, óháð kyni og aldri. Mæld var veggþykkt í hægri og vinstri aðalhálsslagæðinni, bæði í nær- og fjarvegg. Ef það fannst æðaskella var hún flokkuð í hópa eftir stærð hennar og alvarleika. Eins var athugaður stífleiki æða með hjartalínuriti. Myndgreiningarforritin AMS (e. artery measurement software) og K-pacs voru notuð fyrir mælingarnar. Sami lesarinn sá um allan úrlestur til að koma í veg fyrir breytileika á milli lesara. Niðurstöður: Þykktarmælingar slagæðaveggja: Í mælingum innan Toshiba á nærvegg mældist breytileikastuðullinn 4,12%, fylgnin 0,93 og enginn marktækur munur (p=0,07). Í fjarvegg var breytileikastuðullinn 2,66%, fylgnin 0,95 og marktækur munur (p=0,01). Breytileikastuðullinn í mælingum innan Acuson var 4,01% í nærvegg, fylgnin 0,89 og enginn marktækur munur (p=0,43). Fyrir fjarvegg var breytileikastuðullinn 2,68%, fylgnin 0,96 og marktækur munur (p=0,03). Á milli tækjanna (heimsókn 1 og 3) var breytileikastuðullinn fyrir nærvegg 5,44%, fylgnin 0,92 og enginn marktækur munur (p=0,12). Fyrir fjarvegg var breytileikastuðullinn 3,29%, fylgnin 0,93 og enginn marktækur munur (p=0,88). M-mode mælingar: Innan Toshiba í mælingum á meðalþani æða mældist breytileikastuðullinn ...