Umboðssvik í starfsemi fjármálafyrirtækja

Undangengin ár og áratugi hefur orðið gríðarleg framþróun í viðskiptalífi hérlendis og að sama skapi í starfsemi fjármálafyrirtækja. Traust lagaumgjörð á þeim réttarsviðum sem ætlað er að veita refsivernd gegn ólögmætri háttsemi og ógætilegum viðskiptaháttum er ein grunnforsendna þess að viðskiptalí...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þorvaldur Birgir Arnarsson 1977-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20581
Description
Summary:Undangengin ár og áratugi hefur orðið gríðarleg framþróun í viðskiptalífi hérlendis og að sama skapi í starfsemi fjármálafyrirtækja. Traust lagaumgjörð á þeim réttarsviðum sem ætlað er að veita refsivernd gegn ólögmætri háttsemi og ógætilegum viðskiptaháttum er ein grunnforsendna þess að viðskiptalíf vaxni áfram og dafni. Hefur undanfarið borið talsvert á réttarfarslegum álitamálum á þessu sviði og ekki síst hvað varðar beitingu ákvæða XXVI. kafla hegningarlaga um auðgunarbrot. Meginmarkmið þessarar ritgerðar er því að skoða beitingu umboðsvikaákvæðisins í tengslum við starfsemi fjármálafyrirtækja. Rýnt verður í hugtaksskilyrði umboðssvikahugtaksins, leitast við að skýra þau með fullnægjandi hætti og borin saman réttarframkvæmd að dönskum rétti við þá framkvæmd sem tíðkast hér á landi. Enn fremur verður gerð athugun á því hvort núgildandi umboðssvikaákvæði hegningarlaga standist þær kröfur sem gerðar eru til refsiheimilda að íslenskum rétti. Niðurstaða þessa rannsóknarverkefnis er sú helst að enn er margt óljóst varðandi beitingu ákvæðisins hvað starfsemi fjármálafyrirtækja varðar. Í síbreytilegu umhverfi fjármálaheimsins þarf oft á tíðum að taka ákvarðanir án tafar og því einsýnt að fyrirsvarsmönnum slíkra félaga ætti að eftirláta nokkuð svigrúm við mat á innri reglum félagsins og þeim aðstæðum sem upp kunna að koma hverju sinni. Þá er mælt með endurskoðun á orðalagi ákvæðisins með tilliti til markmiðs þess en ákvæðið hefur staðið óbreytt frá setningu almennra hegningarlaga árið 1940. Að endingu er lagt til að ákvæðum verði bætt inn í lög um fjármálafyrirtæki er taka skuli til ógætilegra lánveitinga. In recent years Iceland has witnessed vast developments in the areas of commerce and the operations of financial institutions. For the purposes of protection from illegitimate and reckless business conduct a solid legal framework is essential and an absolute premise for the continuing growth and prosperity of the financial market. In this regard various judicial issues have occurred of late, especially in the ...