Markaðsgreining : vinnustofur arkitekta á Íslandi

Tilgangur þessa lokaverkefnis er að kanna hvernig arkitektamarkaðinn liggur. Nánar tiltekið að kanna aðgengi arkitektastofa að viðskiptavinum og hvernig starfsumhverfi stofanna er. Þetta var skoðað útfrá staðsetningu arkitektastofanna til að sjá hvort það væri munur á stofum á höfuðborgarsvæðinu og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Svanhvít Pétursdóttir 1982-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20547
Description
Summary:Tilgangur þessa lokaverkefnis er að kanna hvernig arkitektamarkaðinn liggur. Nánar tiltekið að kanna aðgengi arkitektastofa að viðskiptavinum og hvernig starfsumhverfi stofanna er. Þetta var skoðað útfrá staðsetningu arkitektastofanna til að sjá hvort það væri munur á stofum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Vinnuálag var einnig skoðað útfrá staðsetningu. Til að komast að þessu var send út spurningakönnun til arkitekta sem eru skráðir í Arkitektafélag Íslands og eru búsettir á Íslandi. Einnig var haft samband við tíu arkitekta víðsvegar um landið og þeim var svo send stöðluð viðtöl til að fá dýpri innsýn í arkitektaheiminn. Viðtölin voru innihaldsgreind þar sem leitað var að þema. Heimasíður nokkurra arkitektastofa voru líka innihaldsgreindar til að finna sögur þeirra. Með þeim tilgangi að komast meðal annars að því hverjir eru helstu viðskiptavinir, hvar starfsemi þeirra er staðsett og hver markaðshlutun þeirra er. Gerð var PEST greining á stofurnar í heild. Fjallað er almennt um arkitekta og greint frá arkitektasamkeppnir sem eru þeirra helsta tækifæri til að kynna sig. Gerð er grein fyrir þeim stofum, sem teknar voru fyrir í innihalsgreiningu, og þeirra nær- og fjærmarkaði. Í kjölfarið var gerð markaðsgreining fyrir arkitektastofur byggða á þessari innihaldgreiningu og viðtölum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru helst þær að arkitektar eru ekki að auglýsa sig mikið heldur láta þeir verkin tala og skapa þannig umtal. Arkitektastéttin virðis lítt þekkt meðal almennings á Íslandi að sögn nokkurra arkitekta. Þeir segja einnig að almenningur á Íslandi skilji ekki fagurfræðina í arkitektúr. Langflestir þátttakendur rannsóknarinnar eru staðsettir á höfuðborgarsvæðinu. Algengustu viðskiptavinir arkitektastofa eru einstaklingar, bæjarfélög og stofnanir. The purpose of this thesis is to examine how the architects market lies. In detail, to examine how access to customers is for architects workshops and also, to see how their working environment is implemented. This was examined based on location of the workshop, ...