Rafbílavæðing á Íslandi : kostir og gallar

Þegar kemur að framtíðarorkugjöfum bílaflota landsmanna þá er annars vegar horft til rafbílavæðingar hans eða vetnisvæðingar. Báðir þessir orkukostir hafa þá kosti að vera mengunarlitlir, hægt væri að framleiða þá innanlands og þar með spara þjóðarbúinu íslenska töluverðar fjárhæðir. Vetnisbílar eru...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ágúst Brynjar Daníelsson 1978-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20545
Description
Summary:Þegar kemur að framtíðarorkugjöfum bílaflota landsmanna þá er annars vegar horft til rafbílavæðingar hans eða vetnisvæðingar. Báðir þessir orkukostir hafa þá kosti að vera mengunarlitlir, hægt væri að framleiða þá innanlands og þar með spara þjóðarbúinu íslenska töluverðar fjárhæðir. Vetnisbílar eru enn í fjarlægri framtíð en rafmagnsbílarnir hafa á síðustu árum risið úr öskustónni eftir að hafa lognast að mestu leyti út í byrjun 20. aldarinnar og komið nú fram sem kostur til móts við bíla knúna jarðefnaeldsneyti. Það er ljóst að bílaframleiðendur munu í auknum mæli framleiða rafmagnsbíla til að svara kröfum markaðarins sem og stjórnvalda um umhverfisvænni fararskjóta. Búast má við því að á næstu árum mun úrval rafmagnsbíla aukast töluvert frá því sem nú er en enn eru bílarnir á jaðri þess að vera raunhæfur kostur, í ljósi kostnaðar og langdrægni þeirra, til að koma í stað venjulega heimilisbílsins. Tilgangur þessarar ritgerðar er að kanna hversu hagkvæmir rafmagnsbílarnir eru í raun og veru, kosti þeirra og galla ásamt markaðssetningu þeirra. Í fyrsta sinn er nú er nú í boði sami bíll í rafmagns-, bensín- og díselútgáfu og er því hægt að gera beinan samanburð á þessum orkugjöfum á sömu forsendum og verður notast við módel sem byggt er á módeli FÍB um rekstrarkostnað bifreiða. Í ritgerðinni verður stiklað á stóru í rafbílasögunni, framtíð rafmagnsbílsins könnuð, reifaðir verða helstu samkeppnisaðilar þeirra, skoðaðar verða sviðsmyndir af uppbyggingu hleðslunets á landsvísu og gerðar verða SVÓT og söluráðagreiningar á rafmagnsbílum. Ritgerðin sýnir berlega að rafmagnsbílar eru ekki enn sem komið er raunhæfur kostur til að skipta algerlega út bílaflota landsmanna. Of margar tæknilegar hindranir eru enn til staðar til að víðtæk rafbílavæðing geti orðið að veruleika á næstu árum. Tímabundnar niðurgreiðslur hins opinbera í formi niðurfellingar virðisaukaskatts og vörugjalda er stórt jákvætt skref en án þeirra eru rafmagnsbílar ekki samkeppnishæfir í verði. Það er mat höfundar að rafmagnsbílar eru framtíðin og að ...