Single Parenthood and Adverse Health and Behavioral Outcomes among Children: A cross sectional study among children in Iceland 2011

Bakgrunnur: Í þessari rannsókn voru mælikvarðar á velferð og líðan barna sem búa hjá báðum foreldrum bornir saman við börn einstæðra foreldra. Markmið: Að kanna tilgátuna hvort börn sem búa hjá einstæðum foreldrum á Íslandi séu líklegri til að glíma við andleg og líkamleg heilsufarsvandamál en börn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrafnhildur Halldórsdóttir 1962-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20470
Description
Summary:Bakgrunnur: Í þessari rannsókn voru mælikvarðar á velferð og líðan barna sem búa hjá báðum foreldrum bornir saman við börn einstæðra foreldra. Markmið: Að kanna tilgátuna hvort börn sem búa hjá einstæðum foreldrum á Íslandi séu líklegri til að glíma við andleg og líkamleg heilsufarsvandamál en börn sem búa hjá báðum foreldrum. Aðferðafræði: Rannsóknin nýtti gögn úr íslenska hluta könnunarinnar "Heilbrigði og líðan barna og unglinga á Norðurlöndum 2011”. Í þessari þversniðsrannsókn voru 3.200 börn á aldrinum 2-17 ára valin eftir kyni og aldri með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Alls bárust útfylltir spurningalistar fyrir 1.523 börn, svarhlutfall var 48.9%. Aðhvarfsgreining var notuð við greiningu á sambandinu milli hjúskaparstöðu foreldra og útkomubreyta; ofvirkni með athyglisbrest, kvíða og ofþyngd ásamt heildarerfiðleikatölu á SDQ–Ice spurningalistanum. Niðurstöður voru einnig lagskiptar eftir kyni barns. Niðurstöður : Niðurstöður voru birtar í fimm fjölþáttagreingar líkönum. Leiðrétt var fyrir aldri og kyni barns, aldri foreldris, heildartekjum fjölskyldunar, menntunarstigi foreldris, ásamt kvíða foreldris. Loka líkan sýndi marktækan mun á líðan barna eftir því hvort þau bjuggu með einu foreldri eða báðum, börn einstæðra foreldra voru líklegri til að glíma við kvíða OR= 2,04 95% CI [1,12-3,73], ofvirkni með athyglisbresti OR= 2,02 95% CI [1,04-3,90], ofþyngd OR= 3,13 95% CI [1,24-7,92], ásamt hærri heildarerfileikatölu á SDQ-Ice. Niðurstöður sýndu að drengir voru líklegri til að sýna einkenni ofvirkni með athyglisbrest ásamt hærri heildarerfileikatölu á SDQ-Ice en stúlkur. Drengir einstæðra foreldra voru líklegri til að vera í yfirþyngd saman borið við drengi sem búa hjá báðum foreldrum OR= 3,87 95% CL [1,10-13,64]. Stúlkur einstæðra foreldra voru með hærri heildarefiðleikatölu á SDQ-Ice en stúlkur sem búa hjá báðum foreldrum. Kvíði foreldra hafði sterkt jákvætt forspárgildi í öllum líkönum, nema hvað varðar yfirþyngd. Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar studdu upphaflega tilgátu , þ.e. að börn sem búa hjá ...