Að skapa leiklistarbraut : uppbygging og þróun leiklistarbrautar í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

Vorið 2009 samþykkti menntamálaráðuneytið leiklistarkjörsvið innan listnámsbrautar í Fjölbrautaskólanu í Garðabæ sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Sá sem þetta skrifar hefur tekið þátt í þróunarferli brautarinnar frá byrjun. Þessi ritgerð snýst um að skoða ítarlega uppbyggingu brautarinnar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjarni Snæbjörnsson 1978-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20454
Description
Summary:Vorið 2009 samþykkti menntamálaráðuneytið leiklistarkjörsvið innan listnámsbrautar í Fjölbrautaskólanu í Garðabæ sem er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Sá sem þetta skrifar hefur tekið þátt í þróunarferli brautarinnar frá byrjun. Þessi ritgerð snýst um að skoða ítarlega uppbyggingu brautarinnar frá nokkrum sjónarhornum. Í fyrsta lagi er gerð greinargóð lýsing á aðdraganda brautarinnar og hvernig hún kom til í upphafi. Í öðru lagi er talað um hvaða leiðir voru notaðar til að tryggja faglega uppbyggingu frá upphafi. Í þriðja lagi er brautin og uppbygging hennar borin saman hugmyndir fræðimanna um hvernig framþróun nemenda gæti verið sem best á slíkum brautum fyrir framhaldsskólastigið. Í fjórða lagi skoða ég sérstaklega þátt minn í þessu ferli sem hefur nú tekið um 5 ½ ár. Ég rannsaka hvernig aðferðir mínar við þróun brautarinnar hafa virkað og einnig skoða ég þróun mína sem kennari á tímabilinu. Í lokin varpa ég fram hugleiðingum um niðurstöðu rannsóknarinnar varðandi þróunina og uppbyggingu leiklistarbrautarinnar og hvernig mín gildi og vinnuaðferðir höfðu áhrif á þá vinnu. In the spring of 2009 the Icelandic Ministry of Education approved a drama and theatre department within the school curriculum of Fjölbrautaskólinn í Garðabæ secondary school. The department was the first of its kind in Iceland. The author of this thesis has been a part of the creative process of the department from the outset. The study examines in depth the development of the department from several angles. Firstly, how the department came to be. Secondly, light is shed on which paths were used to ensure professional development of the department. Thirdly, there is a comparison of the department and its development with research and scholarly ideas about how the progression of students could be best implemented at the secondary level of drama education. Lastly, I research especially my own personal part in this whole process which has now taken 5 ½ years. I look at my influence on the process and the methods I used and why. I also ...