„Kennið þeim að halda allt sem ég hef boðið yður." Boðun og guðsmyndir í fermingarfræðsluefni þjóðkirkjunnar

Ritgerð þessi er lokaverkefni til mag.theol. prófs í guðfræði við Háskóla Íslands. Umfjöllunarefnið er helstu áherslur þjóðkirkjunnar í fræðsluefni sem ætlað er fermingarbörnum í upphafi 21. aldarinnar með áherslu á guðsmynd og kristinn mannskilning. Ritgerðinni er ætlað að svara því með hvaða hætti...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Gísladóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2015
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20346
Description
Summary:Ritgerð þessi er lokaverkefni til mag.theol. prófs í guðfræði við Háskóla Íslands. Umfjöllunarefnið er helstu áherslur þjóðkirkjunnar í fræðsluefni sem ætlað er fermingarbörnum í upphafi 21. aldarinnar með áherslu á guðsmynd og kristinn mannskilning. Ritgerðinni er ætlað að svara því með hvaða hætti kristin boðun birtist fermingarbörnum í nýútgefnu fræðsluefni Skálholtsútgáfu og hvernig því er miðlað í afhelguðu samfélagi samtímans. Birtingarmynd Guðs í sama efnivið er einnig til umfjöllunar. Skoðað er sérstaklega sjónarhorn feminískrar guðfræði á guðsmyndina og færð rök fyrir nauðsyn þess að nota kvenkyns tungutak í bland við fjöbreyttar birtingarmyndir Guðs til að styrkja guðsmyndina í hugum ungmenna. Til grundvallar við greiningu á fræðsluefninu er stuðst við stefnur þjóðkirkjunnar og Reykjavíkurborgar í fræðslumálum. Í ritgerðinni er komist að þeirri niðurstöðu að boðunarhluti fræðsluefnisins er vandaður, höfðar sterkt til ungmenna og tekur mið af takmarkaðri þekkingu fermingarbarna í kristinfræði. Er snýr að guðsmyndinni í sama efnivið er niðurstaðan sú að Guð er kynntur til leiks sem nálægt og persónulegt afl sem auðvelt er fyrir unglinga að tengja við. Guðsmyndin er þó einhæf og úr takt við jafnréttiskröfur þjóðkirkjunnar og samfélagsins. Í ritgerðinni er einnig sýnt fram á mikilvægi þess að efla innviði allrar fræðslu til ungmenna til að bregðast fljótt við hnignandi kunnáttuleysi í kjölfar breytinga á kristinfræðikennslu innan grunnskólanna. Velt er upp möguleikanum að hefja formlega fræðslu fyrir börn fyrr og vinna þannig markvisst að því að tengja samfélag og hverfiskirkju sterkari böndum. Margar leiðir eru færar í þeim efnum og ein slík rædd í umræðum. This thesis is the final assignment for a mag.theol. degree in theology at the University of Iceland. The main focus of this final thesis is exploring the teaching material the National Church of Iceland utilizes in the beginning of the 21. century for children who are at the age of confirmation. With the emphasis being on the image of God and ...