Að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla

Í nýrri Aðalnámskrá grunnskóla frá 2013 er læsi gert hátt undir höfði sem einum af sex grunnþáttum námskrárinnar. Markmið ritgerðarinnar er því að skoða hvað námskráin og önnur fræði segja um læsi og tengja það læsi almennt sem og læsi á hin ýmsu tungumál náttúrufræðinnar. Náttúru-fræðitextar eru fj...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20108
id ftskemman:oai:skemman.is:1946/20108
record_format openpolar
spelling ftskemman:oai:skemman.is:1946/20108 2023-05-15T16:52:49+02:00 Að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla Understanding the language of natural science : literacy strategies for the younger pupils in elementary school Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir 1987- Háskóli Íslands 2014-10 application/pdf http://hdl.handle.net/1946/20108 is ice http://hdl.handle.net/1946/20108 Meistaraprófsritgerðir Læsi Náttúrufræði Námskrár Hugtakaskilningur Thesis Master's 2014 ftskemman 2022-12-11T06:51:34Z Í nýrri Aðalnámskrá grunnskóla frá 2013 er læsi gert hátt undir höfði sem einum af sex grunnþáttum námskrárinnar. Markmið ritgerðarinnar er því að skoða hvað námskráin og önnur fræði segja um læsi og tengja það læsi almennt sem og læsi á hin ýmsu tungumál náttúrufræðinnar. Náttúru-fræðitextar eru fjölhátta, þ.e. textar sem innihalda mismunandi textaform eins og myndir, töflur, formúlur, auk venjulegs ritmáls. Samspil þessara mismunandi textaforma getur því oft reynst þrautin þyngri og því er lykilatriði að nemendur fái kennslu og þjálfun við lestur á slíkum textum. Hugtakið læsi í víðum skilningi tekur vel á þessu, þar sem það er túlkað sem samspil lesturs, ritunar og merkingarsköpunar. Þá eiga nemendur að geta lesið mismunandi texta, skilið hvað þeir lesa og um leið gefið því merkingu út frá reynslu sinni með því að handleika eða vinna með námsefnið á verklegan og skapandi hátt. Skoðaðar eru nokkrar kennsluaðferðir sem reynst hafa vel við kennslu í læsi, bæði almennt og í náttúrufræðum. Einnig er unnið með skrifleg gögn frá kennurum, á yngri stigum grunnskóla, í tengslum við þróun þeirra á náttúrufræðikennslu með læsi að leiðarljósi. Í framhaldinu voru tekin viðtöl við kennarana til að fá aðeins betri sýn á starf þeirra og breytingar sem höfðu átt sér stað í þróunarferlinu. Með því að kenna nemendum að lesa mismunandi gerðir texta, auka þeir orðaforða sinn jafnt og þétt og eiga því auðveldara með að tengja nýtt efni við það sem áður hefur verið lesið eða framkvæmt. Það er þó ekki eingöngu lærdómur á efni fræðitextans, sem lesinn er hverju sinni, heldur ætti þetta smám saman að auðvelda nemendum að verða læsir á fleiri gerðir fræðitexta. Literacy is highly regarded in the new national curriculum guide for elementary schools in Iceland from 2013 and is considered one out of six basic abilities that pupils should acquire. The objective of this essay is to examine what the main curriculum and other studies say about literacy and connect it to literacy in general as well as the literacy in the various languages of ... Thesis Iceland Skemman (Iceland) Höfði ENVELOPE(-20.481,-20.481,64.143,64.143)
institution Open Polar
collection Skemman (Iceland)
op_collection_id ftskemman
language Icelandic
topic Meistaraprófsritgerðir
Læsi
Náttúrufræði
Námskrár
Hugtakaskilningur
spellingShingle Meistaraprófsritgerðir
Læsi
Náttúrufræði
Námskrár
Hugtakaskilningur
Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir 1987-
Að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla
topic_facet Meistaraprófsritgerðir
Læsi
Náttúrufræði
Námskrár
Hugtakaskilningur
description Í nýrri Aðalnámskrá grunnskóla frá 2013 er læsi gert hátt undir höfði sem einum af sex grunnþáttum námskrárinnar. Markmið ritgerðarinnar er því að skoða hvað námskráin og önnur fræði segja um læsi og tengja það læsi almennt sem og læsi á hin ýmsu tungumál náttúrufræðinnar. Náttúru-fræðitextar eru fjölhátta, þ.e. textar sem innihalda mismunandi textaform eins og myndir, töflur, formúlur, auk venjulegs ritmáls. Samspil þessara mismunandi textaforma getur því oft reynst þrautin þyngri og því er lykilatriði að nemendur fái kennslu og þjálfun við lestur á slíkum textum. Hugtakið læsi í víðum skilningi tekur vel á þessu, þar sem það er túlkað sem samspil lesturs, ritunar og merkingarsköpunar. Þá eiga nemendur að geta lesið mismunandi texta, skilið hvað þeir lesa og um leið gefið því merkingu út frá reynslu sinni með því að handleika eða vinna með námsefnið á verklegan og skapandi hátt. Skoðaðar eru nokkrar kennsluaðferðir sem reynst hafa vel við kennslu í læsi, bæði almennt og í náttúrufræðum. Einnig er unnið með skrifleg gögn frá kennurum, á yngri stigum grunnskóla, í tengslum við þróun þeirra á náttúrufræðikennslu með læsi að leiðarljósi. Í framhaldinu voru tekin viðtöl við kennarana til að fá aðeins betri sýn á starf þeirra og breytingar sem höfðu átt sér stað í þróunarferlinu. Með því að kenna nemendum að lesa mismunandi gerðir texta, auka þeir orðaforða sinn jafnt og þétt og eiga því auðveldara með að tengja nýtt efni við það sem áður hefur verið lesið eða framkvæmt. Það er þó ekki eingöngu lærdómur á efni fræðitextans, sem lesinn er hverju sinni, heldur ætti þetta smám saman að auðvelda nemendum að verða læsir á fleiri gerðir fræðitexta. Literacy is highly regarded in the new national curriculum guide for elementary schools in Iceland from 2013 and is considered one out of six basic abilities that pupils should acquire. The objective of this essay is to examine what the main curriculum and other studies say about literacy and connect it to literacy in general as well as the literacy in the various languages of ...
author2 Háskóli Íslands
format Thesis
author Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir 1987-
author_facet Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir 1987-
author_sort Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir 1987-
title Að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla
title_short Að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla
title_full Að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla
title_fullStr Að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla
title_full_unstemmed Að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla
title_sort að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla
publishDate 2014
url http://hdl.handle.net/1946/20108
long_lat ENVELOPE(-20.481,-20.481,64.143,64.143)
geographic Höfði
geographic_facet Höfði
genre Iceland
genre_facet Iceland
op_relation http://hdl.handle.net/1946/20108
_version_ 1766043238194479104