Að verða læs á tungumál náttúrufræðinnar : læsisaðferðir ætlaðar yngri stigum grunnskóla

Í nýrri Aðalnámskrá grunnskóla frá 2013 er læsi gert hátt undir höfði sem einum af sex grunnþáttum námskrárinnar. Markmið ritgerðarinnar er því að skoða hvað námskráin og önnur fræði segja um læsi og tengja það læsi almennt sem og læsi á hin ýmsu tungumál náttúrufræðinnar. Náttúru-fræðitextar eru fj...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/20108
Description
Summary:Í nýrri Aðalnámskrá grunnskóla frá 2013 er læsi gert hátt undir höfði sem einum af sex grunnþáttum námskrárinnar. Markmið ritgerðarinnar er því að skoða hvað námskráin og önnur fræði segja um læsi og tengja það læsi almennt sem og læsi á hin ýmsu tungumál náttúrufræðinnar. Náttúru-fræðitextar eru fjölhátta, þ.e. textar sem innihalda mismunandi textaform eins og myndir, töflur, formúlur, auk venjulegs ritmáls. Samspil þessara mismunandi textaforma getur því oft reynst þrautin þyngri og því er lykilatriði að nemendur fái kennslu og þjálfun við lestur á slíkum textum. Hugtakið læsi í víðum skilningi tekur vel á þessu, þar sem það er túlkað sem samspil lesturs, ritunar og merkingarsköpunar. Þá eiga nemendur að geta lesið mismunandi texta, skilið hvað þeir lesa og um leið gefið því merkingu út frá reynslu sinni með því að handleika eða vinna með námsefnið á verklegan og skapandi hátt. Skoðaðar eru nokkrar kennsluaðferðir sem reynst hafa vel við kennslu í læsi, bæði almennt og í náttúrufræðum. Einnig er unnið með skrifleg gögn frá kennurum, á yngri stigum grunnskóla, í tengslum við þróun þeirra á náttúrufræðikennslu með læsi að leiðarljósi. Í framhaldinu voru tekin viðtöl við kennarana til að fá aðeins betri sýn á starf þeirra og breytingar sem höfðu átt sér stað í þróunarferlinu. Með því að kenna nemendum að lesa mismunandi gerðir texta, auka þeir orðaforða sinn jafnt og þétt og eiga því auðveldara með að tengja nýtt efni við það sem áður hefur verið lesið eða framkvæmt. Það er þó ekki eingöngu lærdómur á efni fræðitextans, sem lesinn er hverju sinni, heldur ætti þetta smám saman að auðvelda nemendum að verða læsir á fleiri gerðir fræðitexta. Literacy is highly regarded in the new national curriculum guide for elementary schools in Iceland from 2013 and is considered one out of six basic abilities that pupils should acquire. The objective of this essay is to examine what the main curriculum and other studies say about literacy and connect it to literacy in general as well as the literacy in the various languages of ...