Summary: | Efni erindis og greinar minnar er orðræðan sem átti sér stað í fjölmiðlum, bæði hefðbundnum og félagsmiðlum, um áætlaða moskubyggingu í Reykjavík á vegum Félags múslíma á Íslandi, en þetta mál braust fram á haustdögum 2013. Samfélag múslíma á Íslandi er fámennt og hefur að mestu verið lítið áberandi í opinberri umræðu þar til haustið 2013. Þá má segja að einskonar siðræn skelfing (moral panic) hafi gripið um sig og fór í gang heit umræða, með og á móti moskubyggingunni. Stofnaðar voru tvær facebook síður þar sem mjög lífleg orðaskipti áttu sér stað, auk töluverðs fjölda aðsendra blaðagreina. Allir virtust hafa miklar skoðanir á málinu og voru skoðanaskipti oft skörp og stundum á mörkum hatursorðræðu. Útlendingahatur, íslamófóbía og annað í þeim dúr gaus upp og átakalínur um hverjir væru velkomnir og hverjir ekki á Íslandi skýrðust. Fjölmenningarsinnar og þjóðernissinnar tókust á opinberlega. Það hafði verið moska í Reykjavík í mörg ár en þegar fréttin um að Borgin hefði útvegað lóð til moskubyggingar, varð „fjandinn laus“, ef svo má að orði komast. Ég mun gera grein fyrir orðræðunni sem fór í gang við þessar fréttir og bera saman við hliðstæður annars staðar á Vesturlöndum og ræða hugtakið siðræn skelfing.
|