Dreifni og mislitni í lengdarbreytileika mtDNA yfir eina kynslóð í þorski, Gadus morhua

Í þorski sem og ýmsum öðrum dýrategundum er lengdarbreytileiki til staðar í mt-DNA. Orsök hans er að finna í endurtekningum á D-lykkju svæði hvatberans. Þar er svokallað þríþátta ástand þar sem D-þráður verður til ásamt H-og L-þætti DNAsins. Endurtekningarnar eru við 5'-enda D-lykkjunnar, 40 ba...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Katrín Halldórsdóttir 1972-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19965
Description
Summary:Í þorski sem og ýmsum öðrum dýrategundum er lengdarbreytileiki til staðar í mt-DNA. Orsök hans er að finna í endurtekningum á D-lykkju svæði hvatberans. Þar er svokallað þríþátta ástand þar sem D-þráður verður til ásamt H-og L-þætti DNAsins. Endurtekningarnar eru við 5'-enda D-lykkjunnar, 40 basapara bútar sem mynda annarsstigsbyggingar. Athyglisvert er að allir þorskar sem skoðaðir hafa verið eru mislitna um þennan lengdarbreytileika. Fjöldi endurtekninga er misjafn og var áhugi fyrir því að kanna hvaða breytingar yrðu á dreifni og mislitni lengdarbreytileikans við flutning erfðaefnisins frá móður til eggs, þ.e. yfir eina kynslóð. Svæðið var magnað með PCR aðferð með þar til gerðum vísum. Afurðirnar voru keyrðar bæði á agarósageli, pólíakrílamíðgeli og í sjálfvirku rafdráttartæki. Mæður voru keyrðar oftar en einu sinni og á fleiri en einum stað í gelinu. Eggin voru keyrð einu sinni hvert um sig en fjöldi þeirra notaður á sama hátt og endurteknar keyrslur mæðra. Niðurstöður voru þær að stökkbreytingar verða við myndun eggfrumunnar. Meðaltöl stærðar lengdarendurtekninga endurtekinna eggja hverfa að meðaltali. Meðaltöl eggja móður með lágt meðaltal eru stærri en meðaltal móðurinnar en meðaltöl eggja móður með hátt meðaltal eru minni en meðaltal móðurinnar. Um dreifni gildir hins vegar það að egg hverrar móður hafa aukningu í dreifni miðað við móðurina. Stökkbreytingarnar sem valda breytingunum eru bæði DNA tilfærsla sem og mishröð eftirmyndun DNA búta af mismunandi lengd. Ályktað er að val verði við þroskun eggjanna yfir í fullveðja einstaklinga sem minnkar breytileika og dreifni. Length variation is found in Atlantic cod mtDNA as in many other animal species. In cod this is based on 40 base pair tandem repeats in the D-loop region of the mtDNA. The tandem repeats are at the 5'-end of the D-loop and they can form stable secondary structures. Each cod investigated so far is heteroplasmic for the length variation and the number of repeats varies between one and ten. The question investigated here is whether during ...