Markaðssetning á netinu - íslenskar netverslanir

Þetta verkefni er lokaritgerð til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Markmið verkefnisins var að rannsaka hvernig íslenskar netverslanir markaðssetja sig, skoðuð voru fyrirtæki sem selja áþreifanlegar vörur í gegnum netið. Þrjár rannsóknarspurningar voru settar fram í byrjun verk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Axel Snær Jón Jónsson 1991-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19958
Description
Summary:Þetta verkefni er lokaritgerð til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Markmið verkefnisins var að rannsaka hvernig íslenskar netverslanir markaðssetja sig, skoðuð voru fyrirtæki sem selja áþreifanlegar vörur í gegnum netið. Þrjár rannsóknarspurningar voru settar fram í byrjun verkefnisins og eru þær eftirfarandi: ● Hvernig markaðssetja íslenskar netverslanir sig? ● Hvernig nýta netverslanir helstu miðla, vefsíður, leitarvélar og samfélagsmiðla til markaðssetningar? ● Hverjir eru helstu kostir og ókostir þess að vera með netverslun? Fjallað er almennt um netnotkun fyrirtækja og mismunandi leiðir sem fyrirtæki geta nýtt sér til markaðssetningar á netinu, svo sem með vefborðum og tölvupóstum. Rætt er um heimasíður fyrirtækja og hvernig hægt er að auka umferð inn á vefsvæði, hvernig netverslanir geta fært sig ofar á leitarvélum og hvernig fyrirtæki geta notað samfélagsmiðla til markaðssetningar. Við gerð verkefnisins var notast við megindlega rannsóknaraðferð, sendur var út spurningalisti í formi netkönnunar til gagnaöflunar, unnið var úr gögnunum og köku- og línurit útbúin. Niðurstaða verkefnisins byggir á svörum úrtaksins. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að meirihluti netverslana á Íslandi hafi fáa starfsmenn og eyði ekki miklu fjármagni í markaðssetningu, þar sem í ljós kom að einungis helmingur fyrirtækjanna hefur skilgreind markmið hvað varðar markaðssetningu. Meirihluti fyrirtækjanna vinnur markvisst að því að auka umferð inn á heimasíðu sína. Nánast allir nýta sér samfélagsmiðla og rétt rúmlega helmingur auglýsir á vefsíðum. Lykilorð: Markaðssetning á netinu, leitarvélar, samfélagsnet, netverslanir, Internetið. This project is a thesis for a B.Sc degree in Business administration at the University of Akureyri. The aim of this project is to examine how Icelandic e-commercial stores market themselves. Stores that sell tangible products over the internet will be examined. Three research questions were put forward at the beginning of this project: ● How do Icelandic e-commercial ...