Vörumerkjaþekking barna. Vörumerkjaþekking leikskólabarna á aldrinum 4-5 ára

Framkvæmd var spurningakönnun meðal 101 leikskólabarns á þremur leikskólum í Reykjavík með það að markmiði að svara rannsóknarspurningunni „Velja leikskólabörn á aldrinum 4-5 ára frekar þekkt vörumerki en óþekkt og þá hvers vegna?“. Börnunum voru sýndar myndir af átta vöruflokkum, tvær myndir í hver...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigríður Ákadóttir 1976-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19782
Description
Summary:Framkvæmd var spurningakönnun meðal 101 leikskólabarns á þremur leikskólum í Reykjavík með það að markmiði að svara rannsóknarspurningunni „Velja leikskólabörn á aldrinum 4-5 ára frekar þekkt vörumerki en óþekkt og þá hvers vegna?“. Börnunum voru sýndar myndir af átta vöruflokkum, tvær myndir í hverjum flokki, og beðin um að velja hvort þau myndu kaupa þekkta vörumerkið eða það óþekkta. Niðurstöður benda til þess að leikskólabörnin kannast með yfirburðum við vörumerkin sem eru stíluð inn á þeirra aldurshóp. Stúlkurnar í rannsókninni völdu í fleiri tilfellum þekktu vörumerkin en í þeim hluta rannsóknarinnar þar sem þekkja þurfti vörumerkin með nafni var vörumerkjavitund strákanna mun meiri. Niðurstöður benda einnig til þess að vörumerkjavitund leikskólabarna eykst töluvert á milli þessara tveggja fæðingarára.