„Fóður eða fæða?'“ Skólamáltíðir grunnskólabarna

Grunnstef ritgerðarinnar er tengslin milli náttúru, umhverfis, fæðu og heilsu. Fjallað verður um þessi hugtök eins og þau birtast í umræðu um skólamáltíðir íslenskra grunnskólabarna. Börn þjást í síauknum mæli af ýmsum kvillum og lífstílssjúkdómum. Því er brýnt að beina sjónum að þeim fæðuvíddum sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hneta Rós Þorbjörnsdóttir 1980-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19738
Description
Summary:Grunnstef ritgerðarinnar er tengslin milli náttúru, umhverfis, fæðu og heilsu. Fjallað verður um þessi hugtök eins og þau birtast í umræðu um skólamáltíðir íslenskra grunnskólabarna. Börn þjást í síauknum mæli af ýmsum kvillum og lífstílssjúkdómum. Því er brýnt að beina sjónum að þeim fæðuvíddum sem börn búa við ekki síst af þeim sökum að mörg börn eyða drjúgum hluta dags innan veggja skólans. Skv. kenningu Bourdieu mótast bragðskyn og smekkur einstaklinga m.a. vegna áhrifa frá umhverfinu. Maturinn sem boðið er upp á í skólum hefur þannig töluverð áhrif á matarvenjur og heilsufar barna. Því er mikilvægt að beina sjónum að ólíkum þáttum málaflokksins og þeim tækifærum sem þar leynast til þess að upplýsa nemendur um víxlverkandi þætti eigin neyslu, heilsu og umhverfis sjónarmiða. Skólaumhverfið er kjörinn vettvangur fyrir slíkt en bent hefur verið á skólamáltíðir séu ein tegund kennsluvettvangs. Eigindlegri aðferðafræði var beitt við öflun gagna þar sem fyrst og fremst voru tekin viðtöl en einnig var gerð orðræðugreining á opinberri umfjöllun sem birtist í dagblöðum auk fjögurra þátttökuathugauna. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að stéttaskipting hafi verið og sé hugsanlega enn til staðar, í einhverri mynd. Þá kom einnig fram að skortur er á samvinnu ólíkra aðila sem standa að málaflokknum auk þess sem ríkara samstarf heimilis og skóla þarf að eiga sér stað. Skólamáltíðir eru mikilvægur og mótandi vettvangur en einnig kimi opinberrar þjónustu sem býður upp á mikla möguleika. Með skólamáltíðum er unnt að ná fram fyrirbyggjandi aðgerðum sem geta haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og samfélagið allt. Lykilorð: Skólamáltíðir, stéttir, smekkur, fæðuvíddir, fæðufélagsmótun, matarmenningarauður, næringarhyggja, næringarráðleggingar, heilsa, sjálfbær þróun. This thesis centers on the interconnections between nature, environment, food and health. I will discuss these as they appear in the context of school meals in Icelandic elementary schools. Increasingly, children suffer a host of lifestyle diseases and ...