„Það er fátt í skólasamfélaginu sem gæti ekki einhvernvegin lent inn á mínu borði.“ Verkþættir í starfi náms- og starfsráðgjafa

Markmið rannsóknarinnar var að kanna helstu verkþætti í störfum náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum. Forvitnilegt var að skoða hvaða verkþættir hafa verið taldir tilheyra starfi náms- og starfsráðgjafa og hvaða verkþættir það voru sem þeir í raun sinna. Athugað var hvort að náms- og starfsráðgjafa...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Alma Sif Kristjánsdóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19715
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að kanna helstu verkþætti í störfum náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum. Forvitnilegt var að skoða hvaða verkþættir hafa verið taldir tilheyra starfi náms- og starfsráðgjafa og hvaða verkþættir það voru sem þeir í raun sinna. Athugað var hvort að náms- og starfsráðgjafar í grunnskólum á Stór- Reykjavíkursvæðinu voru að nota aðferðir eins og heildræna náms- og starfsráðgjafaráætlun til þess að nýta tímann betur og ná betri markmiðum í starfi. Notuð var blönduð rannsóknaraðferð. Spurningalisti var sendur út á 57 starfandi náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum á Stór-Reykjavíkursvæðinu og borin saman svör þátttakenda varðandi hversu oft þeir sinntu ákveðnum verkþáttum í starfi sínu og hversu oft þeir vildu sinna þessum sömu verkþáttum. Til þess að fá betri skilning á niðurstöðum megindlegrar rannsóknar voru tekin viðtöl, þar sem rætt var við sex starfandi náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Niðurstöður sýndu að náms- og starfsráðgjafar vildu samhæfa og styðja við heildræna náms- og starfsráðgjafaráætlun en flestir höfðu ekki tök á því að sinna þeim verkþætti. Náms- og starfsráðgjafarnir lögðu meiri áherslu á persónulega ráðgjöf en mælt er með í heildrænum náms- og starfsráðgjafaráætlunum og settu því minni tíma í náms- og starfsráðgjöf og fræðslu. The aim of the study was to identify the main activities in the work of guidance counsellors in compulsory schools in the greater Reykjavík area. Of particular interest was to examine which activities are usually associated with vocational and educational guidance counsellors and which activities they perform. Attention was paid to whether vocational and educational guidance counsellors in compulsory schools were basing their work on a comprehensive school guidance and counseling program to maximise their efficiency and better achieve their work goals. Mixed research methods were used, questionnaires were sent to a sample of 57 guidance counsellors and interviews were held with six guidance counsellors working ...