Kynjaðar væntingar til kvenna og karla í tveimur leikskólum

Í greininni er fjallað um konur og karla sem starfa við uppeldi og kennslu í tveimur leikskólum á Íslandi. Lögð er áhersla á að skoða hvernig hugmyndir um karlmennsku og kvenleika hafa áhrif á vinnubrögð þeirra og viðhorf og væntingar sem þau mæta í starfi. Ætlunin er að varpa ljósi á stöðu jafnrétt...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Laufey Axelsdóttir 1976-, Gyða Margrét Pétursdóttir 1973-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19654
Description
Summary:Í greininni er fjallað um konur og karla sem starfa við uppeldi og kennslu í tveimur leikskólum á Íslandi. Lögð er áhersla á að skoða hvernig hugmyndir um karlmennsku og kvenleika hafa áhrif á vinnubrögð þeirra og viðhorf og væntingar sem þau mæta í starfi. Ætlunin er að varpa ljósi á stöðu jafnréttismála í þessum tveimur leikskólum. Byggt er á hugtökum Connell (1987), ríkjandi karlmennska og styðjandi kvenleiki. Eigindlegum rannsóknaraðferðum var beitt en gagnasöfnun í formi hálf-staðlaðra einstaklingsviðtala og þátttökuathugana hófst í september 2011 og stóð fram í apríl 2012. Tekin voru viðtöl við átta konur og tvo karla sem starfa í tveimur leikskólum og gerðar tvær þátttökuathuganir, ein í hvorum leikskóla. Niðurstöður benda til þess að verkaskipting í leikskólunum tveimur sé kynjuð þar sem hefðbundnum hugmyndum um hlutverk kynjanna er viðhaldið innan þeirra. Orðræðan um karlana innan leikskólanna og áherslur þeirra er með jákvæðum formerkjum og þeim hrósað af konunum fyrir að sinna til dæmis fótbolta. Þessi stuðningur skapar körlunum ákveðna sérstöðu í leikskólunum tveimur þar sem sambærileg orðræða á sér ekki stað um konurnar. Orðræðan um áherslur kvennanna á líkamlega umönn-un, eftirlit og foreldrasamskipti var oft með neikvæðum formerkjum. Umræðan var lituð eðlishyggju: talað var um móðureðlið sem áhrifaþátt í starfsvali og að kynin væru ólík og þyrftu þar af leiðandi ólík verkefni. Einnig kom fram að karlkyns starfsmenn í leikskólunum tveimur mæta fordómum en það bendir til þess að starfið samræmist illa hugmyndum samfélagsins um karlmennskuna. Umræðan gefur til kynna að fólk virðist eiga erfitt með að sjá það fyrir sér að karlar sem sækjast eftir starfi í leikskólum geri það af áhuga á umönnun og velferð barna heldur hljóti annarleg sjónarmið að búa þar að baki. The World Economic Forum (2013) annually reports on the status of the global gender gap in 136 countries (p. 6). According to the 2013 report Iceland is the country with the narrowest gender gap in the world (p. 16). Even though the ...