Áfallastreita meðal sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort áfallastreita væri til staðar meðal sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna og hvort þörf væri á stuðning fyrir þessar starfsstéttir. Erlendar rannsóknir s‎ýna að starfstengd streita sjúkraflutni...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Hanna Vigdís Jóhannesdóttir, Magna Björk Ólafsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/196
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort áfallastreita væri til staðar meðal sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna og hvort þörf væri á stuðning fyrir þessar starfsstéttir. Erlendar rannsóknir s‎ýna að starfstengd streita sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna getur ‏‏þróast í áfallastreitu og valdið ‏þeim erfiðleikum við líf og störf. Við gerð rannsóknarinnar var notað megindlegt rannsóknarsnið. Í úrtaki voru allir sjúkraflutninga- og slökkviliðsmenn starfandi á Akureyri, Húsavík og Ísafirði, alls 50 starfsmenn. Spurningalistar voru sendir á slökkviliðsstöðvar ofantaldra staða og stóð rannsóknin yfir í tvær vikur. Fjörutíu einstaklingar svöruðu eða 80%. Spurningalistinn var hannaður af rannsakendum með hliðsjón af tveimur erlendum mælitækjum er meta áfallastreitu samkvæmt greiningarskilyrðum DSM-IV á áfallastreitu. Helstu niðurstöður voru að 60% fundu fyrir streitu í starfi og voru 10% ‏‏þátttakenda með fulla greiningu fyrir áfallastreitu. Alls voru 40% með fimm eða fleiri einkenni áfallastreitu en ‏það ‏þurfti sjö einkenni til greiningar. Langflestir höfðu ‏þörf fyrir að ræða alvarlega atvik tengd starfi og var algengast að ‏þeir ræddu við samstarfsaðila. Meirihluti ‏þátttakenda taldi þörf fyrir stuðning í starfi og ‏þ‏á helst á fyrstu fimm árunum. Algengasta form stuðnings sem var í boði, var aðgangur að áfallateymi en minnihluti þátttakenda hafði n‎ýtt sér þá ‏‏þjónustu.