Replacing fish oil in Arctic charr diets : effect on growth, feed utilization and product quality

Verkefnið er lokað til júlí 2009 Þessi rannsóknin var framkvæmd til að kanna hvort að bleikja (Salvelinus alpinus), gæti vaxið vel á fóðri sem inniheldur plöntuolíur í stað lýsis. Eftir fóðrun með tilraunafóðrum var kannað hve langan tíma það tæki að endurheimta ásættanlegt hlutfalli af fjölómettuðu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bjarni Jónasson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:English
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1958
Description
Summary:Verkefnið er lokað til júlí 2009 Þessi rannsóknin var framkvæmd til að kanna hvort að bleikja (Salvelinus alpinus), gæti vaxið vel á fóðri sem inniheldur plöntuolíur í stað lýsis. Eftir fóðrun með tilraunafóðrum var kannað hve langan tíma það tæki að endurheimta ásættanlegt hlutfalli af fjölómettuðum n – 3 fitusýrum (PUFA) í fiskholdið til að hámarka næringarlegt gildi fyrir neitendur. Bleikja með meðalþyngd 550 ±83 g var alin í 13 vikur við 6°C og fóðruð með fóðri sem innihélt lýsi (FO), soya- olíu (SO) eða pálmolíu (PO). Ólíkir fitugjafar höfðu ekki áhrif á vöxt, lifrarstuðul eða afurðargæði bleikjunnar. Samt sem áður hafði pálmolía í bleikjufóðri marktæk áhrif á fóðurstuðul, próteinnýtingu og meltanleika fóðursins. Mismunandi fitusýrur í fóðri endurspegluðust í ólíkum fitusýrusamsetningum fiskholds. Magn n – 3 PUFA fitusýra í holdi í hópum sem fóðraðir voru með jurtaolíum var marktækt lægra. Óhagstæðari hlutföll af n – 3 og n – 6 fitusýrum komu fram í öllum hópum fóðruðum á plöntuolíum vegna umtalsverðs magns af línólsýru (18:2n – 6) sem kemur úr plöntuolíum. Eftir bakfóðrun með lýsisfóðri hafði hold endurheimt umtalsvert magn af n – 3 fitusýrum en línólsýra, 18:2n – 6 virðist sitja lengi í holdi. Hlutfall milli n – 3 og n – 6 var mun ásættanlegra í holdi bleikju sem fóðruð var á pálmolíu, borið saman við soyaolíu. Þessar niðurstöður benda til þess að bleikja geti vaxið vel á fóðri sem inniheldur plöntuolíur í stað lýsis. Einnig var kannað hvort smáseiði gætu komið að notum við að spá fyrir um heppileg hráefni í fóður fyrir stærri fisk. Tilraunir í slíkum stærðarskala myndu spara mikinn kostnað þar sem eldið er ekki jafn umfangsmikið. Fóður með 5 mismunandi fitugjöfum í mismunandi samsetningum voru gefin smáseiðium (0.246 g) frá 24. maí til 14. ágúst 2006. Mismunandi fitugjafar höfðu marktæk áhrif á vöxt smáseiðanna. Lykilorð: Bleikja, pálmaolía, soyaolía, fitusýrur Verkefnið er styrkt af AVS sjóðnum, sjóður til styrktar rannsókna í sjávarútvegi