Tres juegos en acción. Actividades lúdicas como herramienta para fomentar la expresión oral de estudantes de español

Í þessari rannsókn er sjónum beint að því hvort samskiptaleikir í spænskukennslu virki samtal nemenda á markmálinu. Rannsóknin var gerð í menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu þar sem þrír hópar prófuðu þrjár gerðir leikja og var skoðað hvort þeir hefðu hvetjandi áhrif á málnotkun nemenda. Einnig var ath...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ástrún Friðbjörnsdóttir 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Spanish
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19558
Description
Summary:Í þessari rannsókn er sjónum beint að því hvort samskiptaleikir í spænskukennslu virki samtal nemenda á markmálinu. Rannsóknin var gerð í menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu þar sem þrír hópar prófuðu þrjár gerðir leikja og var skoðað hvort þeir hefðu hvetjandi áhrif á málnotkun nemenda. Einnig var athugað hvaða gerð leikja hentaði best til að auka notkun markmálsins og kom í ljós að leikir sem veita nemendunum einhvers konar aðstoð við að mynda setningar hentuðu best, þrátt fyrir að nemendum sjálfum hafi fundist skemmtilegast í keppnisleikjum. Margvíslegar rannsóknir um leiki voru hafðar til hliðsjónar, en allar þessar rannsóknir staðfesta jákvæð áhrif leikjanotkunar á tungumálanám og kennslu. Enn fremur voru algengustu og það sem álitnar eru gagnlegustu aðferðirnar til að hvetja til vaxandi samskiptafærni nemenda rannsakaðar. Gagnasöfnunin var þríþætt þar sem fylgst var með nemendum þegar leikirnir voru notaðir við kennslu auk þess sem fylgst var með kennslustundum án leikja til samanburðar. Nemendur svöruðu spurningakönnun og kennararnir gerðu grein fyrir frá upplifun sinni af notkun leikjanna. Niðurstöður rannsóknarverkefnisins benda eindregið til þess að leikir auki málnotkun nemendanna á markmálinu og sýnt er fram á að leikir eru mikilvæg viðbót í tungumálakennslu. Þá er hægt að nota á fjölbreyttan hátt til þess að virkja þátttöku nemenda og auka vinnuframlag í kennslustundum. In this research conducted to complete a MA degree in teaching of Spanish as a foreign language at the University of Iceland, the question was addressed whether communicative games would increase conversation in the target language. The research was done at a secondary school in Reykjavik where three groups of students took part in testing three types of group games, to determine if the games would enhance student‘s Spanish language skills. Amongst the issues investigated in this research, aimed to determine what kind of games were best suited to increase the use of the target language and it appeared to be the kind of games that ...