Gersemar frá gamla tímanum : útsaumur í Öræfum á árunum 1900 - 1950

Tilgangur verkefnisins var að skoða hvaða útsaumsaðferðir voru notaðar í Öræfum á árunum 1900 – 1950. Sveitin var einangruð af náttúrunnar hendi vegna stórfljóta og sanda bæði austan og vestan megin, með Vatnajökul í norðri og hafnlausa strönd í suðri. Ætla má að þessar gömlu útsaums-aðferðir og sög...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dóra Guðrún Ólafsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19503
Description
Summary:Tilgangur verkefnisins var að skoða hvaða útsaumsaðferðir voru notaðar í Öræfum á árunum 1900 – 1950. Sveitin var einangruð af náttúrunnar hendi vegna stórfljóta og sanda bæði austan og vestan megin, með Vatnajökul í norðri og hafnlausa strönd í suðri. Ætla má að þessar gömlu útsaums-aðferðir og sögur sem tengjast þeim séu merkilegur menningararfur. Ekki er mikið til af skráðum heimildum um útsaumsaðferðir af þessu svæði og er því vert að skrá þær niður þar sem hætta er á að þekkingin deyi út með elstu núlifandi kynslóð. Meginmarkmiðið er að skrá þekkinguna og gera yngra fólki kleift að kynnast sinni fortíð og þeim aðferðum sem voru notaðar á árum áður. Út frá þessum aðferðum var gerð kennslubók með það að markmiði að miðla þekkingunni áfram til komandi kynslóða. Rannsóknarspurningin var: Hvaða útsaumsaðferðir voru notaðar í Öræfum á árunum 1900 – 1950? Leitað var svara með viðtölum, skoðun á bókum, blöðum, handverki og öðrum munum frá tímabilinu. Verkefnið skiptist í tvennt. Annars vegar er kennslubók sem hugsuð er fyrir elstu bekki grunnskólans. Þar er leitast er að setja aðferðirnar fram á greinagóðan hátt, bæði í máli og myndum. Þar eru myndir af gömlu handverki, ýmsir gullmolar úr heimildum og frá viðmælendum auk hugmynda að verkefnum sem tengja þessar gömlu aðferðir við nútímann. Hins vegar er greinargerð, þar sem farið er yfir sögulegan bakgrunn, aðstæður og ástæður einangrunar í Öræfum. Einnig er farið yfir þróun verkefnis, úr hugmynd yfir í kennslubók. The purpose of this project was to examine the embroidery techniques that were used in Öræfi region in the period from 1900-1950. The area was isolated because of glacial rivers and black sand deserts both to the east and west; Vatnajökull glacier in the north; and a harbourless coast in the south. These old embroidery techniques and the history connected to them are a part of a cultural heritage that is at risk of dying out when the oldest living generation passes away. The main goal of the project is to document this knowledge so new generations can ...