ICF : þekking og viðhorf stjórnsýslu á Íslandi: rannsóknaráætlun

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Mikil umræða er um fjölgun öryrkja á Íslandi á undan förnum árum. Ástæða er til að velta fyrir sér hvort markvissari skráning og aðferðir við mat á færni einstaklinga geti varpað skýrara ljósi á þessar aðstæður. Alþjóðaheilbrigðismálasto...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Thorberg
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/195
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Mikil umræða er um fjölgun öryrkja á Íslandi á undan förnum árum. Ástæða er til að velta fyrir sér hvort markvissari skráning og aðferðir við mat á færni einstaklinga geti varpað skýrara ljósi á þessar aðstæður. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin gefur út kerfi til að flokka og skrá upplýsingar um heilsufar fólks og heilbrigðisþjónustu. Síðasta kerfið sem stofnunin gaf úr er International Classification of Function, Disability and Health (ICF). ICF er flokkunar- og kóðunarkerfi sem gerir staðlaða skráningu á heilsutengdri færni og fötlun mögulega og lýsir þessum fyrirbærum frá ólíkum sjónarhornum. Útbreiðsla á ICF er víðtæk og hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvatt aðildarlönd sín til að nota kerfið í skipulagningu á heilbrigðisþjónustu, mati og kostnaðargreiningu. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna þekkingu stjórnsýsluaðila á ICF og viðhorf þeirra til innleiðingar kerfisins hér á landi. Stjórnsýsluaðilar eru starfsmenn æðstu stofnana innan stjórnsýslu sem bera ábyrgð á og koma að málefnum fatlaðra, en þessar stofnanir eru heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, félagsmálaráðuneytið og landlæknisembættRannsóknar- aðferðin verður lýsandi megindleg spurningarkönnun og verður könnunin gerð á netinu. Þátttakendur verða valdir með hentugleikaúrtaki í samvinnu við yfirmenn ofannefndra stofnana. Gögnin verða færð inn í tölfræðiforrit og greind með lýsandi tölfræði. Niðurstöður rannsóknarinnar munu nýtast til að skipuleggja kynningu á ICF og innleiðingu þess á Íslandi. Lykilorð: ICF, færni, fötlun, stjórnsýsla.