Trú á eigin getu, viðhorf og árangur nemenda í rúmfræði með aðstoð forritsins GeoGebra

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif notkunar GeoGebra í stærðfræði– með áherslu á rúmfræði– á nám nemenda með því að skoða tengsl milli trúar þeirra á eigin getu, viðhorfs til stærðfræði/rúmfræði og árangurs þeirra. Lögð var áhersla á möguleika sem felast í uppgötvunarmiðuðu námskeiði með...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Alexandra Viðar 1974-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19494
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif notkunar GeoGebra í stærðfræði– með áherslu á rúmfræði– á nám nemenda með því að skoða tengsl milli trúar þeirra á eigin getu, viðhorfs til stærðfræði/rúmfræði og árangurs þeirra. Lögð var áhersla á möguleika sem felast í uppgötvunarmiðuðu námskeiði með aðstoð forritsins GeoGebra sem boðið var nemendum á almennri braut, „Brautabrú“, við Kvennaskólann í Reykjavík. Rannsóknin er unnin með blandaðri aðferðafræði og niðurstöður hennar byggjast á spurningakönnunum fyrir og eftir þátttöku nemenda í rannsókninni og viðtölum við nemendur og umsjónarkennara þeirra að rannsókn lokinni. Úr greiningu gagna komu fram vísbendingar um aukin árangur nemenda í rúmfræði og trú þeirra á eigin getu í rúmfræði eftir innleiðingu forritsins GeoGebra í námsumhverfi þeirra. Niðurstöður gáfu meðal annars til kynna að getuminni nemendur í stærðfræði telji viðhorf sitt til rúmfræði hafa breyst eftir innleiðingu forritsins GeoGebra í námi þeirra. Að auki leiddi það til þess að bæði sjálfstraust þeirra og árangur í stærðfræði hefur aukist.