Erró í grunnskólakennslu : listferill, teiknimyndir og kennslumöguleikar

Grunnskólabraut Guðmundur Guðmundsson, Erró, ólst upp á Kirkjubæjarklaustri hjá móður sinni og fósturföður. Eftir gagnfræðanám í Reykjavík hóf hann myndlistarnám í Handíða- og myndlistarskólanum. Að því loknu nam hann við Listaakademíuna í Ósló í tvö ár og síðan við Listaakademíuna í Flórens. Hann h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Björnsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1948
Description
Summary:Grunnskólabraut Guðmundur Guðmundsson, Erró, ólst upp á Kirkjubæjarklaustri hjá móður sinni og fósturföður. Eftir gagnfræðanám í Reykjavík hóf hann myndlistarnám í Handíða- og myndlistarskólanum. Að því loknu nam hann við Listaakademíuna í Ósló í tvö ár og síðan við Listaakademíuna í Flórens. Hann hefur ætíð verið afkastamikill listamaður en til marks um það hefur hann gefið Listasafni Reykjavíkur um þrjúþúsund verka sinna. Auk þess hefur hann haldið myndlistarsýningar um allan heim. Í seinni tíð hafa teiknimyndir verið áberandi í listsköpun hans. Ofurhetjur á borð við Captain America, Red Sonja, Silver Surfer, Superman og Wonder Woman prýða fjölmörg verka hans. Hetjurnar er að finna í amerískum teiknimyndasögum sem hafa átt miklum vinsældum að fagna. Gífurlegrar fjölbreytni gætir í verkum hans og tilvalið er að nýta þau í myndlistarkennslu grunnskóla hvort sem fjalla eigi um teiknimyndir, popplist, myndbyggingu, aðferðir eða listamanninn sjálfan. Lykilorð: Grunnskólakennsla.