Hvað eru íþróttir? Saga og þróun íþrótta frá fornöld til nútíma

Tilgangur þessa verkefnis var að skoða sögu og þróun íþrótta til að komast nær skilgreiningu íþrótta. Líkamleg geta og styrkur var aðeins ætlaður æðstu stjórnendum á fornöld. Egyptar elskuðu mannslíkamann og hans form og offita þótti andstyggileg. Grikkir hafa haft mikil áhrif á sögu íþrótta vegna g...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásta Ólafsdóttir 1979-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19354
Description
Summary:Tilgangur þessa verkefnis var að skoða sögu og þróun íþrótta til að komast nær skilgreiningu íþrótta. Líkamleg geta og styrkur var aðeins ætlaður æðstu stjórnendum á fornöld. Egyptar elskuðu mannslíkamann og hans form og offita þótti andstyggileg. Grikkir hafa haft mikil áhrif á sögu íþrótta vegna grísku ólympíuleikanna, og hafa það fram yfir aðra að hafa skjalfest sögu sína. Rómverjar litu ekki á líkamsþjálfun sem skemmtun heldur eingöngu sem undirbúning fyrir stríð. Leikar og skemmtanir Rómverja voru litaðir af blóðugum bardögum. Íþróttir á miðöldum voru frjálslegri en íþróttir til forna. Kirkjan hjálpaði til að stuðla að þróun íþrótta, en fór seinna að reyna að koma í veg fyrir dægradvöl og leiki almúgans. Íþróttir fóru að verða skipulagðari og stéttarskipting innan þeirra meira áberandi. Uppeldilegt gildi íþrótta fer að koma fram á 19. Öld og á síðari hluta 20. aldar fóru íþróttir að færast inn í íþróttafélögin. Íþróttir nútímans skiptast í skipulagðar íþróttir innan íþróttafélaga og jaðaríþróttir, eða íþróttir sem eru ekki innan íþróttafélaga. Könnun gerð á viðhorfi nemenda Háskólans í Reykjavík til íþrótta. 180 þátttakendur. Niðurstöður sýndu að ekki var marktækur munur á skoðun kynjanna varðandi hvaða greinar teldust til íþrótta nema þegar kom að skák og formúlu 1 kappakstri. Meirihluti þátttakenda telur greinar sem krefjast líkamlegrar áreynslu til íþrótta, og telur meirihluti þátttakenda hæfilega margar greinar innan íþróttafélaga á Íslandi. Meirihluti þátttakenda taldi þær greinar sem upp voru taldar hæfa báðum kynjum, þó sumir teldu bardagaíþróttir og kraftlyftingar henta konum ekki eins vel og körlum.