A-ONE matstækið : forprófun á útgáfu fyrir börn

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Taugaþroski hefur áhrif á möguleika barna til að taka þátt í iðju. Framkæmd iðju krefst ákveðins þroskastigs mismunandi þroskaþátta en þroskafrávik takmarka framkvæmd hjá börnum með svipuðum hætti og taugaeinkenni hjá fullorðnum. Stöðluð...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Erla Alfreðsdóttir, Pálína Sigrún Halldórsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/193
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Taugaþroski hefur áhrif á möguleika barna til að taka þátt í iðju. Framkæmd iðju krefst ákveðins þroskastigs mismunandi þroskaþátta en þroskafrávik takmarka framkvæmd hjá börnum með svipuðum hætti og taugaeinkenni hjá fullorðnum. Stöðluð matstæki eru undirstaða þess að fagmenn geti greint þroskafrávik hjá börnum. Árnadóttir OT-ADL Neurobehavioral Evaluation (A-ONE) er staðlað iðjumiðað áhorfsmatstæki. Metin er færni við iðju á fimm sviðum daglegra athafna á ADL kvarða og taugaatferliskvarða. Þróuð hefur verið útgáfa af matstækinu til að meta börn. Sömu svið eru metin á ADL kvarða og þroskaþáttakvarða . Tilgangur lokaverkefnisins var að forprófa barnaútgáfu A-ONE með því að kanna frammistöðu 5-6 ára norðlenskra barna. Úrtakið var 21 barn af þremur leikskólum á Norðurlandi. Notuð var lýsandi megindleg rannsóknaraðferð ásamt ályktunartölfræði. Frammistaða barna var skoðuð á öllum kvörðum matstækisins og borin saman meðaltalsframmistaða milli ADL sviða og kynja. Niðurstöður leiddu í ljós að matstækið greinir takmörkun á framkvæmd 5-6 ára barna á flestum einstökum atriðum ADL kvarðans og öllum ADL sviðum nema einu. Í samræmi við það greindist takmörkun á einstaka atriðum beggja þroskaþáttakvarða. Ekki var munur á frammistöðu kynja. Þar sem forprófunin náði aðeins til lítils úrtaks eins aldurshóps barna hafa niðurstöður lítið alhæfingargildi. Barnaútgáfa A-ONE veitir annarskonar upplýsingar en önnur matstæki samkvæmt leit í erlendum heimildum og heimildum um matstæki sem notuð eru hér á landi. Sú staðreynd ásamt niðurstöðum forprófunar gefa ástæðu til frekari rannsókna á barnaútgáfu A-ONE. Lykilhugtök: Árnadóttir OT-ADL Neurobehavioral Evalution (A-ONE), Framkvæmd iðju, matstæki, þroskaþættir, taugaatferli