Skylda til sáttameðferðar samkvæmt barnalögum nr. 76/2003

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að skoða sáttamiðlun og skyldu til sáttameðferðar samkvæmt barnalögum nr. 76/2003 eins og þeim var breytt með lögum 61/2012. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er almenn umfjöllun um sáttamiðlun og í seinni hluta er fjallað um skyldu til sáttameðferðar. Sáttamiðlun hefur...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elín Dögg Ómarsdóttir 1982-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19287
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að skoða sáttamiðlun og skyldu til sáttameðferðar samkvæmt barnalögum nr. 76/2003 eins og þeim var breytt með lögum 61/2012. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er almenn umfjöllun um sáttamiðlun og í seinni hluta er fjallað um skyldu til sáttameðferðar. Sáttamiðlun hefur reynst vel í fjölskyldumálum og hafa Noregur og Danmörk gengið það langt að gera sáttamiðlun að skyldu með lögum. Ísland hefur farið að þeirra fordæmi og sett á skyldubundna sáttameðferð með lögum nr. 61/2012, um breytingu á barnalögum nr. 76/2003, sem tóku gildi 1. janúar 2013. Leitast var við að svara hvort skyldubundin sáttameðferð sé líkleg til árangurs. Til að varpa ljósi á hvort svo sé er farið ítarlega yfir efni ákvæðisins sem var lögfest, reglur sem eru byggðar á ákvæðinu, framkvæmd, reynslu sýslumannsembætta frá því að úrræði hófst og reynslu annarra landa. Í þeim efnum komu til skoðunar ýmis álitaefni varðandi skyldubundna sáttameðferð. Kom þar helst til skoðunar að árangur í sáttameðferð er háður vilja aðila til að ná sáttum. Þó svo að fallast megi á að svo sé þá er ekki unnt að útiloka árangur ef vilji er ekki staðar í upphafi. Í tengslum við það kom til skoðunar hvort sáttameðferð henti ekki í ákveðnum málum og hvort veita eigi undanþágu frá skyldunni í tilteknum tilvikum. Ekki var að sjá annað en að skyldubundin sáttameðferð sé líkleg til árangurs. Að minnsta kosti er hagkvæmt að skoða úrræðið sem lausn á ágreiningi en óhætt er segja að skyldubundin sáttameðferð sé skylda til að skoða úrræðið en ekki að taka þátt. The subject of this thesis is mediation and mandatory mediation according to Icelandic Children’s Act no. 76/2003. The first part of the thesis covers mediation in general and in the second half covers mandatory mediation. In the cases of family disputes mediation has been proven very effective. Norway and Denmark have gone as far as to legalize mandatory mediation. Iceland has followed their example with law no. 61/2012, about amendment to the Children’s Act no. 76/2003. This amendment took ...