„Muna þarf eftir því að hvetja og styrkja börnin” : eigindleg rannsókn á innleiðingu PBS í reykvískum skólum
Grunnskólabraut Ritgerðin fjallar um agakerfi sem kallast á íslensku Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun (PBS) og byggir á niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar sem unnin var á tímabilinu febrúar til apríl 2008. Megintilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvert mat skólastjórnenda er á innleiði...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2008
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/1921 |
Summary: | Grunnskólabraut Ritgerðin fjallar um agakerfi sem kallast á íslensku Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun (PBS) og byggir á niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar sem unnin var á tímabilinu febrúar til apríl 2008. Megintilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvert mat skólastjórnenda er á innleiðingu kerfisins. Þátttakendur rannsóknarinnar voru skólastjórar og aðstoðarskólastjórar þriggja skóla í Reykjavík. Við framkvæmd rannsóknarinnar voru tekin viðtöl við stjórnendur skólanna. Viðtölin voru afrituð og niðurstöður unnar út frá þeim. Flest bendir til að skólarnir þrír séu allir á eitt sáttir við innleiðingu agakerfisins. Svipaðar leiðir eru farnar í innleiðingunni þrátt fyrir að ólíkar leiðir séu farnar hvað varðar umbun í skólunum. Lykilorð: Agakerfi, heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun. |
---|