Mjólkurafurðaframleiðsla í Ölfusi : viðskiptatækifæri í ferðaþjónustu?

Læst til 2.5.2016 Verkefnið snýst um að kanna markaðinn á Suðurlandi fyrir litla mjólkurafurðaframleiðslu sem framleiðir og selur afurðir sínar beint frá býli, samhliða því að veita gestum innsýn í sveitabúskap á bænum og tækifæri til að komast í kynni við íslensk húsdýr. Rannsóknarspurningin er: -...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Dögg Snorradóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19171
Description
Summary:Læst til 2.5.2016 Verkefnið snýst um að kanna markaðinn á Suðurlandi fyrir litla mjólkurafurðaframleiðslu sem framleiðir og selur afurðir sínar beint frá býli, samhliða því að veita gestum innsýn í sveitabúskap á bænum og tækifæri til að komast í kynni við íslensk húsdýr. Rannsóknarspurningin er: - er það viðskiptatækifæri að stofna til mjólkurafurðaframleiðslu sem selur vörur sínar beint frá býli við Suðurlandsveg? Til þess að nálgast þessa spurningu þarf að afla upplýsinga meðal annars um það hversu margir bílar eigi leið um Suðurlandsveg, hvenær ársins er umferðin mest, hverjir eru það sem fara þennan veg og í hvaða tilgangi. Einnig þarf að skoða hvernig samkeppnin er á mjólkurafurðamarkaðnum og hvernig þróunin hefur verið undanfarið á sölu á vörum heimavinnsluaðila. Markmið verkefnisins er að skilja hvaða möguleika mjólkurafurðaframleiðsla, sem selur beint til gesta við eina fjölförnustu ferðamannaleið landsins, hefur. Mikill ferðamannastraumur er um Suðurlandsveg í gegnum Ölfus á sumrin þar sem Íslendingar flykkjast í útilegur og á veturna fara þeir margir hverjir í sumarbústaði á Suðurlandi. Einnig er mikið um erlenda ferðamenn á þessum slóðum sem eru að fara til dæmis að skoða Gullfoss, Geysi, Seljalandsfoss, Jökulsárlón og fleira. Mikilvægt er að kanna hvaða möguleikar eru á frekari tekjusköpun af þessum gestastraumi sem einnig býður uppá gæða-afurðir sem unnar eru með höndum og hugsjón en ekki vélrænni fjöldaframleiðslu. Horft verður sérstaklega til Íslendinga og þeirra ferðalaga. Verkefnið gæti gagnast þeim sem hafa áhuga á að nýta sínar afurðir og selja milliliðalaust til kaupenda. Þá gæti það styrkt um leið íslenskan landbúnað með auknum gæðum og vöruframboði á íslenskum mjólkurafurðum auk þess að vekja áhuga höfuðborgarbúa á íslensku sveitalífi og mikilvægi íslensks landbúnaðar. Lykilorð: mjólkurafurðaframleiðsla viðskiptatækifæri landbúnaður Suðurland staðbundin matvæli. In this project a research of the market at the south part of Iceland is done to realize if there is interest for a little ...