Mannauðsstjórnun hótela í Reykjavík og nágrenni. Þjálfun og þróun starfsmanna

Læst til 14.4.2017 Umfjöllunarefni þessa verkefnis er mannauðsstjórnun hótela í Reykjavík og nágrenni. Það eru tvö meginmarkmið sem verða skoðuð í þessu verkefni. Í fyrsta lagi að athuga hvernig stjórnendur hótela í Reykjavík og nágrenni standi að þjálfun og þróun starfsmanna. Í öðru lagi að athuga...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Páll Þráinsson 1985-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19158
Description
Summary:Læst til 14.4.2017 Umfjöllunarefni þessa verkefnis er mannauðsstjórnun hótela í Reykjavík og nágrenni. Það eru tvö meginmarkmið sem verða skoðuð í þessu verkefni. Í fyrsta lagi að athuga hvernig stjórnendur hótela í Reykjavík og nágrenni standi að þjálfun og þróun starfsmanna. Í öðru lagi að athuga hvort stjórnendur telji mikilvægi þessa þáttar hafa aukist í kjölfar fjölgunar erlendra ferðamanna til landsins á síðastliðnum árum. Niðurstöður verkefnisins leiða það í ljós að stjórnendur telja helst óskir starfsfólks og frammistaða þeirra í starfi séu ráðandi varðandi ákvarðanatöku um þjálfun. Yfirleitt eru það almennir stjórnendur sem hafa mest áhrif á skilgreiningu þjálfunarþarfa starfsmanna. Helstu Þjálfunaraðferðir sem stjórnendur nota eru þjálfun í starfi, teymisþjálfun og hefðbundin kennsla eða fyrirlestrar. Þegar þjálfunaraðferðir eru metnar er mest notast við mat fyrir þjálfun og eftir þjálfun ásamt því að kanna viðbrögð starfsmanna við þjálfun. Helstu aðferðir við þróun starfsmanna í starfi voru námskeið, stöðuhækkanir eða mat og endurgjöf frá stjórnendum. Stjórnendur mannauðsmála telja sitt hótel leggja frekar mikið upp úr þjálfun og þróun starfsmanna. Flestir sögðust vera frekar sammála þeirri fullyrðingu um að mikilvægi þjálfunar og þróunar hafi verið að aukast í kjölfar fjölgunar erlendra ferðamanna til landsins á síðastliðnum árum. Því má draga þá ályktun að mikilvægi þjálfunar og þróunar sé að aukast á meðal hótela í Reykjavík og nágrenni. Það er því er mikilvægt að stjórnendur hugi vel að þessum þætti í því ferli að byggja upp ánægða og trygga starfsmenn sem geta valdið starfi sínu og mætt kröfum viðskiptavina og þannig náð forskoti á samkeppnisaðila. Lykilorð: • Mannauðsstjórnun • Þjálfun og þróun • Hótel • Ferðamál The topic of this bachelor thesis is human resource management of hotels in Reykjavik and vicinity. There are two primary intentions which are going to be considered. The first intention is to examine how managers are training and developing their employees. The second aim is to ...