Sjáðu! : Um sjónrænt menningarlæsi

Að vera læs á myndmál og sjónræna framsetningu menningar hvers tíma er nauðsynlegt hverjum einstaklingi til að túlka og skilja þau skilaboð sem honum berast með þeim hætti. Þannig skilur hann betur heiminn sem hann býr í og staðsetningu sína í honum. Í aðalnámskrá er kveðið á um mikilvægi þess að ge...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðlaugur Valgarðsson 1965-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19116
Description
Summary:Að vera læs á myndmál og sjónræna framsetningu menningar hvers tíma er nauðsynlegt hverjum einstaklingi til að túlka og skilja þau skilaboð sem honum berast með þeim hætti. Þannig skilur hann betur heiminn sem hann býr í og staðsetningu sína í honum. Í aðalnámskrá er kveðið á um mikilvægi þess að gera nemendur læsa á umhverfi sitt, ekki síður en á texta, enda er læsi einn af sex grunnþáttum menntunar í aðalnámskrá Mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla frá 2011. Nýjar áherslur á læsi í sem víðustum skilningi krefjast þess líka að til sé fjölbreyttara námsefni sem miðar að aukinni færni í því. Þessu lokaverkefni er ætlað að vera lóð á vogarskálarnar í þeim efnum. Í því er að finna drög að námsefni fyrir nemendur grunnskóla sem á skýran og einfaldan hátt er ætlað að stuðla að því að nemendur skilji og skynji tengsl sjónrænna þátta í umhverfinu í tíma og rúmi. Drögin eru tvenns konar. Annars vegar er efni til að þjálfa sjónrænar tengingar og hins vegar er hugmynd að ítarlegri nálgun á efninu í formi gagnvirks vefefnis. Efnið má nota í hvort í sínu lagi eða saman. Fyrst er umfjöllun um læsi, myndlæsi almennt og sjónrænt menningarlæsi sérstaklega. Þá er farið í tengsl efnisins við þá kennslufræði sem byggt er á og drepið fæti í listfræði þess tíma sem drögin miða við. Í öðrum hluta er lýsing á námsefnisdrögunum og í þriðja hluta eru kennsluleiðbeiningar og leiðbeiningar fyrir nemendur. Fjórði hluti er samantekt. Being able to read visual imagery and the visual presentation of contemporary culture is essential for each individual in order to interpret and understand the messages that he receives by those means. As a result of this he can better understand the world he inhabits and his position in it. In the National curriculum for the primary and lower secondary level in Iceland, the importance of students’ ability to read and interpret their surroundings in the same way as being able to read text is stressed, literacy being one of the six pillars of education. The understanding ...