Fjölmenning í leikskóla : viðtalsrannsókn við sex erlenda foreldra um reynslu þeirra af aðlögun í leikskóla

Læst til 1.6.2040 Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða reynslu erlendra foreldra af að aðlaga barn í leikskóla. Markmiðið var að komast að því hvað foreldrum finnst um aðlögunarferli leikskóla, hvað er þeim gagnlegt og hvað má betur fara. Tekin voru viðtöl við sex foreldra sem hafa reynslu af að a...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Matthildur Stefánsdóttir 1968-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19112
Description
Summary:Læst til 1.6.2040 Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða reynslu erlendra foreldra af að aðlaga barn í leikskóla. Markmiðið var að komast að því hvað foreldrum finnst um aðlögunarferli leikskóla, hvað er þeim gagnlegt og hvað má betur fara. Tekin voru viðtöl við sex foreldra sem hafa reynslu af að aðlaga barn í leikskóla. Í fræðilega kaflanum eru lykilhugtökin innflytjandi, fjölmenning, menning og aðlögun tekin til umfjöllunar. Einnig er þar fjallað um móðurmál, tvítyngi og foreldrasamstarf. Í rannsókninni verður meðal annars fjallað um reynslu foreldra af aðlögunarferlinu, samskipti, móðurmál, tvítyngi, túlkun, menningu og fjölmenningarlega kennslu og viðhorf foreldra til skólastarfsins. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að foreldrar virðast sáttir við aðlögunarferlið. Þeir segja leikskólakennara almennt vera faglega og trausta og aðlögunarferlið vel skipulagt. Foreldrarnir segja beina fjölmenningarlega kennslu ekki vera sýnilega í leikskólunum en kennara vinna faglega að því að efla málþroska tvítyngdra barna og taka tillit til þarfa þeirra. Samskipti milli foreldra og kennara ganga vel að sögn foreldra en þess skal geta að foreldrar þessarar rannsóknar töluðu íslensku og ensku. Enskumælandi foreldrar höfðu orð á að leikskólakennararnir töluðu góða ensku. Það sem kom á óvart í rannsókninni er hversu fráhverfir foreldrarnir virtust vera túlkaþjónustu og hversu lítið þeir vita um fjölmenningarlega kennslu. Einnig kom á óvart að foreldrarnir telja kennarana ekki þurfa að kynna sér bakgrunn fjölskyldunnar nema það snerti heilsu og öryggi barnsins. Niðurstöður þessarar rannsóknar svipar til þeirra rannsókna sem gerðar hafa verið hér á landi þegar kemur að fjölmenningarlegri kennslu og vitneskju kennara um hana. The purpose of this research was to examine the experience of foreign parents adjusting their child to a pre-school in Akureyri. The main goal was to find out what these parents thought about the adapting program, what was useful to them and what could have gone better. Interviews were conducted ...