Er Akranes að nýta þau tækifæri sem felast í aukningu á fjölda ferðamanna

Í þessari ritgerð er fjallað um hvort Akranes sé að nýta þau tækifæri sem felast í fjölda ferðamanna. Straumur ferðamanna hingað til lands hefur aukist gífurlega undanfarin ár og er ferðaþjónusta á Íslandi orðin 2-3. stærsta atvinnugrein landsins. Ferðamennirnir sem koma til Íslands sækjast eftir þv...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ylfa Guðný Sigurðardóttir 1982-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19044
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um hvort Akranes sé að nýta þau tækifæri sem felast í fjölda ferðamanna. Straumur ferðamanna hingað til lands hefur aukist gífurlega undanfarin ár og er ferðaþjónusta á Íslandi orðin 2-3. stærsta atvinnugrein landsins. Ferðamennirnir sem koma til Íslands sækjast eftir því að fá að skoða, upplifa og njóta óspilltrar náttúrunnar og alls sem hún hefur upp á að bjóða ásamt því að vilja kynna sér sögu landsins. Akranes er fallegur bær sem hefur úr mörgu að spila til að mynda Langisandur sem tengir bæinn við sjóinn og allt sem hann hefur upp á að bjóða. Farið var í að gera upp Akranesvita til að bjarga verðmætum en eftir að Akranesviti var opnaður fyrir ferðamönnum kom í ljós að hann virkar sem mikið aðdráttarafl. Tekin voru viðtöl við aðila í ferðaþjónustu og rekstraraðila á Akranesi ásamt því að send var spurningarkönnun á 3 aðila. Tilgangurinn var að fá innsýn í ferðaþjónustu á Akranesi og Hveragerði. Eftir að hafa farið í gegnum þessa rannsókn telur höfundur að niðurstaðan liggi skýrt fyrir en að mati höfundar er Akranes ekki að nýta öll tækifærin sem felast í aukningu á fjölda ferðamanna. Fyrstu skrefin í uppbyggingu á ferðamannaþjónustu Akraness hafa verið stiginn en bærinn hefur ekki náð almennri fótfestu sem ferðamannabær.