Áhrif FATCA á íslensk fjármálafyrirtæki

Ritgerðin er lokuð til 2020 Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hvað íslensk fjármálafyrirtæki þurfa að gera til þess að innleiða verklag vegna nýrrar bandarískrar skattalöggjafar að nafni FATCA. Í rannsókn þessari er reynt að svara hvaða áhrif FATCA hefur á íslensk fjármálafyrirtæki og r...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hörður Jens Guðmundsson 1981-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/19026
Description
Summary:Ritgerðin er lokuð til 2020 Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hvað íslensk fjármálafyrirtæki þurfa að gera til þess að innleiða verklag vegna nýrrar bandarískrar skattalöggjafar að nafni FATCA. Í rannsókn þessari er reynt að svara hvaða áhrif FATCA hefur á íslensk fjármálafyrirtæki og reynt að finna út hagnýtar lausnir og gefa góð ráð fyrir aðila sem vinna að því að setja upp nýtt verklag varðandi FATCA á Íslandi. Einnig er reynt að benda á lausnir sem hægt er að skoða til þess að einfalda það ferli sem á sér stað við innleiðingu á þessari nýju aðferðarfræði. Niðurstöður eru settar fram í kjölfar viðtals við viðmælanda sem er sérfræðingur í innleiðingu á FATCA og hefur unnið að þessum málaflokki frá stofnun þess. Sá hefur meðal annars unnið að innleiðingu FATCA hjá sænskum fjármálafyrirtækjum og jafnframt verið ráðgjafi fyrir önnur erlend fjármálafyrirtæki. Notast var við eigindleg viðtöl til þess að fá innsýn í innleiðingu fjármálafyrirtækis á Norðurlöndunum sem vinnur eftir sambærilegri löggjöf og fjármálafyrirtæki hér á landi. Niðurstöður benda til þess að íslensk fjármálafyrirtæki þurfi að huga að þó nokkrum atriðum við innleiðingu á FATCA, svo sem nýju verklagi tengdu áreiðanleikakönnunum vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka, hugbúnaðarlausnum og fræðslu starfsmanna vegna ráðgjafar til viðskiptavina. Ef fjármálafyrirtæki sinnir ekki þeim skyldum sem settar eru fram við setningu FACTA laganna, eiga þau sjálf og viðskiptavinir þeirra á hættu að verða skattlögð á grundvelli þessarar nýju löggjafar. The purpose of this thesis is to shed light on what Icelandic financial institutions need to do to implement procedures for a new tax legislation from the U.S. called FATCA. With this research I will attempt to answer what impact FATCA has on Icelandic financial institutions, try to point out practical solutions and give advice to entities working to set up new procedures for FATCA in Iceland. I will also try to point out solutions that can be viewed in order to simplify the process that ...