Auglýsingamiðlar á Íslandi : standa stafrænir og hefðbundnir auglýsingamiðlar jafnfætis í íslensku markaðsstarfi þegar kemur að skilvirkni skilaboða og marktækni?

Val á réttum auglýsingamiðlum er grundvallaratriði til að ná til réttra markhópa á réttum stað á réttum tíma og í fjölbreyttu markaðsumhverfi nútímans þarf markaðsfólk sem aldrei fyrr að vera á tánum þegar kemur að vali á réttum miðlum. Tilgangur þessa verkefnis er að veita innsýn inn í notkun íslen...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigþór Árnason 1984-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18958
Description
Summary:Val á réttum auglýsingamiðlum er grundvallaratriði til að ná til réttra markhópa á réttum stað á réttum tíma og í fjölbreyttu markaðsumhverfi nútímans þarf markaðsfólk sem aldrei fyrr að vera á tánum þegar kemur að vali á réttum miðlum. Tilgangur þessa verkefnis er að veita innsýn inn í notkun íslenskra fyrirtækja á auglýsingamiðlum, hvernig þeir eru valdir og hvort stafrænir og hefðbundnir auglýsingamiðlar standi jafnfætis á Íslandi þegar kemur að skilvirkni skilaboða og marktækni. Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir í formi þriggja viðtala við fagmenn á sviði markaðssetningar og birtinga en einnig var notast við niðurstöður úr eigindlegri rannsókn Capacent meðal markaðsstjóra á Íslandi. Helstu niðurstöður voru þær að stafrænir og hefðbundnir auglýsingamiðlar standa ekki jafnfætis í íslensku markaðsstarfi. Kostir þeirra eru ólíkir og þeir virðast ná til mismunandi hópa. Þrátt fyrir að jafnvel sé mögulegt að senda út sömu skilaboð á allflestum miðlum er nauðsynlegt að aðlaga skilaboðin hverjum miðli fyrir sig til að hámarka árangur auglýsinga. Lykilhugtök: Markaðssetning, hefðbundnir auglýsingamiðlar, stafrænir auglýsingamiðlar, markhópar, kaupákvörðunarferli, samhæfð markaðssamskipti, söluráðar, birtingar, spurningakönnun, viðtöl. Choosing the appropriate advertising media is one of the key factors when it comes to reaching the right target groups at the right place, at the right time and in the variety of modern marketing environment marketers need more then ever to be on top of things when choosing the appropriate media. The purpose of this thesis is to review how Icelandic companies use advertising media, how they choose them and if digital media and traditional media are equal in Iceland when it comes to message efficiency and significance. The research used qualitative methods, three interviews with professionals in marketing and media planning, but it also reviews a quantitative reasearch from Capacent, made among marketing managers in Iceland. The main findings were that digital media and ...