Þátttaka og sjálfræði einstaklinga með mænuskaða : rannsóknaráætlun

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Einstaklingar sem búa við fötlun af einhverju tagi hafa oft þurft að berjast fyrir þátttöku og sjálfræði í gegnum tíðina. Sjálfræði er nauðsynlegur þáttur í tengslum við þátttöku í samfélaginu. Sjálfræði er mikilvægur hluti af lífi flest...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Soffía Vatnsdal
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/189
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Einstaklingar sem búa við fötlun af einhverju tagi hafa oft þurft að berjast fyrir þátttöku og sjálfræði í gegnum tíðina. Sjálfræði er nauðsynlegur þáttur í tengslum við þátttöku í samfélaginu. Sjálfræði er mikilvægur hluti af lífi flestra og ef einstaklingar eiga við fötlun eða langvinnan sjúkdóm að stríða getur það verið í hættu. Sjálfræði tengist því að geta tekið ákvarðanir í eigin lífi án takmarkana og er meðal annars að geta ákveðið hvenær og hvernig einstaklingurinn klæðir sig. Það sem einstaklingurinn þarf að hafa til þess að öðlast þesskonar sjálfræði er ákveðin líkamleg færni sem gerir honum kleift að framkvæma þær athafnir sem hann hefur ákveðið að gera. Tilgangur rannsóknarinnar er að afla upplýsinga um hvernig einstaklingar með mænuskaða meta möguleika sína á þátttöku og sjálfræði. Að hve miklu leyti þeir upplifa takmarkanir á þátttöku og sjálfræði sem vandamál og hvort matstækið Áhrif á Þátttöku og Sjálfræði (ÁÞS) hafi notagildi í íslenskri þýðingu. Þýði rannsóknarinnar eru allir einstaklingar 18 ára og eldri sem hafa orðið fyrir mænuskaða og verið í endurhæfingu á sérhæfðari endurhæfingadeild á íslandi á tímabilinu 1975 – 2005, útskrifast heim og búið heima í a.m.k. 6 mánuði. Áhrif á Þátttöku og sjálfræði er spurningalisti og hefur hann verið þýddur af höfundi þessarar rannsóknaráætlunar með beinni þýðingaraðferð og er nú tilbúin til þýðingar á vegum sérfræðinefndar. Aflað verður upplýsinga um notagildi íslensku þýðingarinnar með spurningalista sem samin var sérstaklega fyrir rannsóknina. Vænta má að niðurstöður rannsóknarinnar gefi vísbendingar um hvernig styðja megi einstaklinga í endurhæfingu til aukinnar þátttöku í samfélaginu og til aukins sjálfræðis. Einnig gefa þær upplýsingar um notagildi íslenskrar þýðingar ÁÞS. Lykilhugtök: Þátttaka, sjálfræði, mænuskaði, matstæki og fötlun.