Að brúa bilið : er þétting byggðar lausnin?

Ritgerð þessi er 6 eininga lokaverkefni til BA-prófs í arkitektúr. Óheimilt er að afrita ritgerðina á nokkurn hátt nema með leyfi höfundar. Á tíma mikilla breytinga í borgarskipulagi með auknar áherslur á umhverfismál og þéttingu byggðar í Reykjavík, er í þessu riti velt upp þeirri spurningu hvaða á...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Berglind Erika Hammerschmidt 1991-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Bak
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18887
Description
Summary:Ritgerð þessi er 6 eininga lokaverkefni til BA-prófs í arkitektúr. Óheimilt er að afrita ritgerðina á nokkurn hátt nema með leyfi höfundar. Á tíma mikilla breytinga í borgarskipulagi með auknar áherslur á umhverfismál og þéttingu byggðar í Reykjavík, er í þessu riti velt upp þeirri spurningu hvaða áhrif þetta átak í borgarþéttingu muni hafa á hin dreifbýlari svæði borgarinnar? Þ.e.a.s. á úthverfi Reykjavíkur. Leitast verður við að fjalla um þéttingu byggðar á gagnrýninn hátt, út frá sjónarmiðum úthverfisbúa. Stuðst verður við margvísleg fræðirit jafnt innlend sem erlend og rannsóknir sem nýverið hafa verið gerðar í sambandi við nýja stefnu um hverfaskipulag og myndun vistvænna hverfa í Reykjavík. Út frá þessum gögnum verða síðan vegnir og metnir kostir og gallar þess að búa í úthverfum og reynt að finna lausnir jafnframt á þeim samfélagslegu sem og umhverfislegu vandamálum sem borgarbúar standa frammi fyrir, sökum mikillar útþenslu byggðar. Helstu hugtök sem verða skoðuð í því samhengi eru útþensla byggðar, staður, heimili, samfélag, nágrannasamtök, úthverfi, gönguhæfi, léttlestarkerfi og lífsgæði. Í fyrsta kafla ritsins verða þeir samfélagslegu eiginleikar greindir sem einkenna staði og hvernig fjölbreyttni í umhverfinu og samstarfi hverfisbúa í mótun hverfa og hvernig meigi gera þau að heimilislegri og líflegri stöðum. Í öðrum kafla verður síðan tekin fyrir hugmyndin á bak við skipulag hverfa, uppbygging þeirra, kostir og gallar. Leitast er eftir að úthverfi myndi sjálfbærar einingar í borginni, þar sem úthverfisbúinn er ekki eins háður bílnum og getur sótt allt sem hann þarf innan hverfis síns. Þetta er hugsað sem fyrsta skrefið í áttina að vistvænni hverfum, sem eru í senn sjálfum sér nóg sem og í tengslum við aðra hluta borgarinnar. Ritgerð þessi er 6 eininga lokaverkefni til BA-prófs í arkitektúr. Óheimilt er að afrita ritgerðina á nokkurn hátt nema með leyfi höfundar.