Tónmennt og stærðfræði : mögulegir snertifletir til samþættingar kennslu

Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í verkefni þessu er leitast við að svara þeirri spurningu hvort stærðfræði og tónmennt eigi snertifleti sem nota megi til samþættingar kennslu. Einnig verður læsishugtakið skoðað í samhengi við hvora námsgrei...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnar Jón Ragnarsson 1986-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18872
Description
Summary:Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í verkefni þessu er leitast við að svara þeirri spurningu hvort stærðfræði og tónmennt eigi snertifleti sem nota megi til samþættingar kennslu. Einnig verður læsishugtakið skoðað í samhengi við hvora námsgrein fyrir sig og með því lagður grunnur að kennsluhugmyndum sem samþætta tónmennt og stærðfræði. Hugtök á borð við mynsturlæsi verða skoðuð sérstaklega þar sem mynstur koma fyrir bæði í tónlist og stærðfræði. Snertifletir þessara faga eru athugaðir út frá tveimur meginþáttum tónfræðanna, tónhæð og tónalengd. Tónhæð á sér stærðfræðilega tengingu sem hægt er að rekja aftur til Forn-Grikkja. Nöfn nótnanna verða skoðuð út frá mynstrum og hvernig má setja þau fram svo nemendur geti betur skilið virkni þeirra. Tónstigar og kirkjutóntegundir verða þá skoðaðar með það að markmiði að nemendur geti nýtt sér mynstureiginleika þeirra til að öðlast betri skilning á tónlist. Nótnalengdir verða einnig skoðaðar og hvernig þær tengjast brotareikningi. Nýjar áherslur varðandi læsi gefa möguleika á að skoða hugtakið í víðara samhengi. Læsi er ekki lengur aðeins sú aðgerð að lesa staf af bók heldur er það nær því að mynda merkingu úr mismunandi byggingareiningum og táknum. Mismunandi heimildir verða skoðaðar sem varpa ljósi á hvaða þættir það eru í læsi sem snúa að þessum tveimur fögum, tónmennt og stærðfræði. Þrjár kennsluhugmyndir verða settar fram sem snúa að nótnaheitum, tónstigum og nótnalengdum. Leitast verður við að nemendur fái að vinna með efnið á sem flestan máta og á mismunandi miðlum. Einnig eiga nemendur að fá að vinna með efnið í tölvu og búa til stuttar laglínur. Allt miðar þetta að því að nemendur fái aukna leikni í hvoru fagi fyrir sig auk þess sem þetta auki möguleika þeirra sem fá eða hafa áhuga á tónlist að gera sínar eigin tilraunir. The following paper is a final thesis for a B.Ed-degree at the faculty of education from the University of Akureyri. In this paper the question of wheather mathematics and music have ...