Sköpun : undirstaða náms

Læst til 1.6.2024 Ritgerð þessi er 12 ECTS-eininga lokaverkefni til B.Ed.-gráðu í kennaradeild við Háskólann á Akureyri. Meginviðfangsefni þessa verkefnis, sem er fræðileg úttekt á sviði sköpunar í námi og kennslu, er hugtakið sköpun og sú merking sem því er ætlað að hafa. Einnig er fjallað um kenns...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hjördís Stefánsdóttir 1970-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18851
Description
Summary:Læst til 1.6.2024 Ritgerð þessi er 12 ECTS-eininga lokaverkefni til B.Ed.-gráðu í kennaradeild við Háskólann á Akureyri. Meginviðfangsefni þessa verkefnis, sem er fræðileg úttekt á sviði sköpunar í námi og kennslu, er hugtakið sköpun og sú merking sem því er ætlað að hafa. Einnig er fjallað um kennsluaðferðir til að koma sköpun að í kennslu og hversu mikilvægt það er fyrir nemendur að fá tækifæri til að uppgötva sjálfir í gegnum sköpun og verklegt nám. Árið 2011 voru gefnar út nýjar aðalnámskrár fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla þar sem settir eru fram sex grunnþættir sem eiga að mynda kjarna menntunar í skólum landsins. Einn þessara sex þátta er sköpun í námi, en hugtakið sköpun á að vera umfangsmikið í öllu skólastarfi samkvæmt nýju námskránum. Í upphafi verkefnisins er fjallað um kenningar sem John Dewey og Howard Gardner hafa sett fram, en námskenningar fræðimanna geta hjálpað okkur við að skoða og skilja eðli náms og kennslu. Fjallað er um grunnþætti menntunar, sköpun og gildi skapandi náms – hversu mikilvægt það er að bjóða nemendum upp á fjölbreyttar kennsluaðferðir og þverfaglegt nám og hvernig sköpun getur fléttast inn í allar námgreinar og kennsluaðferðir í skólastarfinu. Fjallað er um þemanám sem kennsluaðferð og skoðaðar eru kennsluaðferðir sem geta nýst vel í skapandi námi og samþættingu námsgreina með áherslu á þemanám og sköpun. Í lok ritgerðarinnar er síðan sett fram hugmynd að verkefnum sem falla undir þemanám þar sem sköpun gegnir stóru hlutverki. This essay is a 12 ECTS credits final project towards a B.Ed. -degree in the Faculty of Education at the University of Akureyri. The main subject of this project, which is an academic study in the field of creativity in learning and teaching, is the concept of creativity and its intended meaning. It also touches on methods of introducing creativity in education and how important it is for students to have the opportunity to discover themselves through creativity and practical learning. In 2011, new curricula for preschool, primary school and ...