Upplifun einstaklinga af öndunarvélameðferð : rannsóknaráætlun

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til BS prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna upplifun einstaklinga af því að vera í öndunarvél. Rannsóknin beinist að því að skoða andlega og líkamlega líðan þessara einstaklinga, reynslu þeirra af samskiptum í þ...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Marsa Hrönn Daníelsdóttir 1974-, Katrín Stefanía Pálsdóttir 1988-, Hildur Ósk Rúnarsdóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18835
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til BS prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna upplifun einstaklinga af því að vera í öndunarvél. Rannsóknin beinist að því að skoða andlega og líkamlega líðan þessara einstaklinga, reynslu þeirra af samskiptum í þessum aðstæðum, hvenær hætta eigi meðferð í öndunarvél og hvort réttlætanlegt sé að leggja slíka meðferð á einstaklinga með langt gengið krabbamein. Þátttakendur verða á aldrinum 18-67 ára. Margir einstaklingar í öndunarvél upplifa mikla andlega vanlíðan eins og ótta og reiði. Jafnframt upplifa þeir oft mikla líkamlega vanlíðan sem tengist helst verkjum, einnig hafa margir þeirra greint frá slæmum martröðum og ofskynjunum. Hjúkrun sjúklinga í öndunarvél getur verið vandasöm og spila samskiptaörðugleikar þar stórt hlutverk sem og rétt næring og góð verkjastilling. Erfitt getur verið fyrir aðstandendur að horfa upp á ástvini sína í öndunarvél og því er mikilvægt að veita fjölskyldumiðaða hjúkrun. Tíðni krabbameins hefur farið stigvaxandi á síðustu árum og er nú ein algengasta dánarorsök víða um heim. Vegna síbreytilegs gangs sjúkdómsins getur verið erfitt að ákveða hvort leggja eigi öndunarvélameðferð á þennan sjúklingahóp. Rannsóknaraðferðin verður eigindleg og gagna aflað með viðtölum þar sem leitast verður við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hver er upplifun einstaklinga af því að vera í öndunarvél? Er réttlætanlegt að leggja öndunarvélameðferð á einstaklinga með langt gengið krabbamein? Hvernig er reynsla sjúklinga í öndunarvél af samskiptum? Þörf er á eigindlegum rannsóknum til þess að dýpka og auka þekkingu hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna á upplifun einstaklinga af því að vera í öndunarvél. Lykilhugtök: Öndunarvél, öndunarvélameðferð, upplifun, hjúkrun, krabbamein, líknarmeðferð, samskipti, verkir. This research proposal is a thesis to a BS in nursing at the University of Akureyri. This research is aimed at the examination of mental and physical condition of these individuals, ...