Algeng vandamál við brjóstagjöf : áhrifaþættir og bjargráð

Læst til 1.5.2019 Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur verkefnisins er að afla upplýsinga um helstu áhrifaþætti þess að mæður hætta með börn sín á brjósti fyrir ráðlagðan tíma og hvað mætti gera betur í þjónustu við mæður í ungbar...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Heiða María Elfarsdóttir 1990-, Hafdís Guðrún Benidiktsdóttir 1987-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18825
Description
Summary:Læst til 1.5.2019 Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur verkefnisins er að afla upplýsinga um helstu áhrifaþætti þess að mæður hætta með börn sín á brjósti fyrir ráðlagðan tíma og hvað mætti gera betur í þjónustu við mæður í ungbarnavernd til að stuðla að lengri brjóstagjöf. Í framhaldinu er sett fram rannsóknaráætlun til þess að rannsaka efnið í náinni framtíð. Í fræðilegri samantekt eru helstu áhrifaþættirnir teknir saman og þau ráð sem heilbrigðisstarfsfólk getur veitt mjólkandi mæðrum. Algengir áhrifaþættir eru meðal annars: stálmi og sárar geirvörtur, stíflur og sýkingar, of lítil mjólkurframleiðsla, andleg vanlíðan og persónulegir áhrifaþættir. Lögð var sérstök áhersla á stuðning og fræðslu frá heilbrigðisstarfsfólki sem er mikilvægur þáttur til að auka gæði þjónustu við mæður og fjölskyldur þeirra. Rannsóknir sýna að hátt hlutfall kvenna hættir með barnið sitt á brjósti fyrir ráðlagðan tíma, þó brjóstagjöf hafi heilsubætandi áhrif á börnin og mæðurnar sjálfar. Stuðst verður við eigindlega aðferðarfræði Vancouver skólans við gerð rannsóknarinnar. Í þýðinu verða mæður 18 mánaða barna sem sækja reglulegt eftirlit í ungbarnavernd á Heilsugæslustöðinni á Akureyri. Þátttakendur verða valdir með tilviljunarkenndu úrtaki. Lykilorð: Brjóstagjöf, eingöngu brjóstagjöf, brjóstamjólk, stuðningur, fræðsla, ungbarnavernd. Common breastfeeding problems: Determinants and coping strategies This research proposal is part of a final assessment towards a B.S. degree in nursing at the University of Akureyri. The purpose of this research would be to compile information on the main determinants for why women cease breastfeeding their babies earlier than advised and what areas could be improved within child health care for longer breastfeeding duration. A research proposal will then be presented that aims to investigate the subject in the future. In a theoretical summary the main determinants are composed and what advice health professionals can provide to ...