Fjölskylduhjúkrun : stuðningur við aðstandendur mikið veikra einstaklinga

Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur rannsóknaráætlunarinnar er að undirbúa rannsókn til þess að kanna gæði fjölskylduhjúkrunar á heilbrigðisstofnunum um landið og upplifun aðstandenda mikið veikra einstaklinga af stuðningi tengdu...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Bryndís Hulda Ríkharðsdóttir 1989-, Berglind Gærdbo Smáradóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18824
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur rannsóknaráætlunarinnar er að undirbúa rannsókn til þess að kanna gæði fjölskylduhjúkrunar á heilbrigðisstofnunum um landið og upplifun aðstandenda mikið veikra einstaklinga af stuðningi tengdum veikindunum og breytingunum sem fylgja. Stuðningur við aðstandendur hefur gríðarlega mikið að segja fyrir heilsu og heilbrigði bæði veika einstaklingsins og fjölskyldunnar allrar. Með breyttum áherslum heilbrigðiskerfisins á Íslandi þar sem lögð er áhersla á styttri legutíma og veikari einstaklingar eru innan heimila hefur aukin ábyrgð færst yfir á fjölskyldumeðlimi. Umönnun mikið veikra er nú í miklum mæli veitt á heimilum þess veika og er þá mikilvægt að huga að heilsu og heilbrigði nánustu fjölskyldumeðlima, ekki síður en sjúklingsins sjálfs. Það getur haft slæm áhrif á veika einstaklinginn ef aðstandendur hans eiga erfitt með að hugsa um sig sjálfir. Rannsókaraðferðin verður eigindleg og notaður verður viðtalsrammi til stuðnings viðtölunum. Viðtöl verða tekin við aðstandendur mikið veikra einstaklinga um land allt í samvinnu við sjúkrahús og heimahjúkrun á hverjum stað þar sem stuðst verður við hálfstaðlaðar spurningar. Við greiningu gagna verður stuðst við kenningu Miles og Hubermans (2004) sem byggir á því að rýna í upplýsingar úr viðtölum þar sem markmiðið er að skilja undirliggjandi merkingu upplýsinganna. Mikilvægt er að stuðla að því að umönnunaraðilar mikið veikra einstaklinga fái viðeigandi aðstoð hvað varðar stuðning og aðstoð við bjargráð í veikindaferlinu. Til þess að það sé mögulegt er nauðsynlegt að koma á skipulegri fræðslu um mikilvægi stuðnings til aðstandenda og sjá til þess að á hverri heilbrigðisstofnun sé unnið að fjölskylduhjúkrun. Lykilhugtök: Fjölskylda, fjölskylduhjúkrun, mikið veikir, stuðningur, hjúkrun, umönnunaraðilar, bjargráð. This research proposal is a final thesis to a BS degree in nursing at the University of Akureyri. The purpose of the proposed study is to examine the ...