Ferskar þorskafurðir frá Íslandi og Noregi og markaðstækifæri í Bandaríkjunum

Verkefni þetta fjallar um útflutning á ferskum þorskafurðum frá Íslandi og Noregi árin 2008-2013 og þróun veiða, vinnslu, hráefnismeðhöndlunar, flutnings og sölu frá árinu 2000 með tilliti til ferskra þorskafurða. Einnig markaðsaðstæður og tækifæri á Bandaríkjamarkaði. Þá er einnig fjallað um útflut...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásgeir Jónsson 1983-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18772
Description
Summary:Verkefni þetta fjallar um útflutning á ferskum þorskafurðum frá Íslandi og Noregi árin 2008-2013 og þróun veiða, vinnslu, hráefnismeðhöndlunar, flutnings og sölu frá árinu 2000 með tilliti til ferskra þorskafurða. Einnig markaðsaðstæður og tækifæri á Bandaríkjamarkaði. Þá er einnig fjallað um útflutning eftir vinnsluflokkum frá Íslandi og Noregi árin 2000-2013 og veiðar á Atlantshafsþorski. Helstu niðurstöður eru þær að útflutningur frá Íslandi á ferskum flökum og bitum hefur margfaldast á undanförnum árum en útflutningur frá Noregi er lítill í samanburði. Útflutningur á heilum (headed/gutted) ferskum þorski er umfangsmikill frá Noregi, en í litlu mæli frá Íslandi. Mikill vöxtur hefur verið í útflutningi á hausuðum þorski frá Noregi í kjölfar aukinna aflaheimilda í Barentshafi. Ólík veiðistjórnun og veiðimynstur á Íslandi og gott flutningskerfi miðað við smæð þjóðar gera það að verkum að íslensk fyrirtæki eru ein þau fremstu í heimi í útflutningi á ferskum flökum og bitum. Samkeppni hefur harðnað á evrópskum mörkuðum undanfarið en útflutningur til Bandaríkjanna hefur aukist hlutfallslega mikið síðustu tvö ár. Takmarkað flugpláss takmarkar hins vegar vaxtarmöguleika íslenskra fyrirtækja þar í landi að einhverju leyti. Hluti ritgerðarinnar er byggður á viðtölum við aðila sem starfa í íslenskum sjávarútvegi. Mikil bjartsýni ríkir varðandi ferskar þorskafurðir og töldu allir frekari vaxtarmöguleika fyrir hendi. Nefnt var að skortur væri á sameiginlegri markaðssetningu í íslenskum sjávarútvegi og þörf á úrbótum. Lykilorð: Atlantshafsþorskur, ferskar þorskafurðir, Ísland, Noregur, útflutningur, viðskipti. This essay is about exported fresh Atlantic cod products from Iceland and Norway between 2008-2013, the development of fishing, processing, handling, transportation and sales regarding fresh cod products in Iceland and market opportunities in The United States of America. Export between different processing methods is also looked into and fishing of Atlantic cod. The main result is that export of fresh fillet has ...