Ferðaþjónusta í Sveitarfélaginu Árborg: Staða stefnumótunar ferðamála í sveitarfélaginu

Ritgerð þessi er 12 eininga lokaverkefni og hluti af Baccalaureum Artium gráðu í Ferðamálafræði við Háskólann á Hólum. Markmiðið með ritgerðinni er að kanna stöðu ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Árborg, stefnumótun og eins hvernig söguleg arfleifð svæðisins er nýtt í ferðaþjónustu. Sveitarfélagið Ár...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jónína Ásta Ölversdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn á Hólum
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18745
Description
Summary:Ritgerð þessi er 12 eininga lokaverkefni og hluti af Baccalaureum Artium gráðu í Ferðamálafræði við Háskólann á Hólum. Markmiðið með ritgerðinni er að kanna stöðu ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Árborg, stefnumótun og eins hvernig söguleg arfleifð svæðisins er nýtt í ferðaþjónustu. Sveitarfélagið Árborg er vel staðsett í nálægð við höfuðborgarsvæðið og helstu náttúruperlur Suðurlands en hefur þó ekki náð að festa sig í sessi sem ferðamannastaður í þeim mikla uppgangi sem er að eiga sér stað í ferðaþjónustu á Íslandi. Mikil umferð liggur í gegnum sveitarfélagið þar sem þjóðvegur 1 liggur í gegnum Selfoss, stærsta þéttbýliskjarna sveitarfélagsins, þá er ýmsa þjónustu fyrir ferðamenn að finna í bænum, enda er Selfoss þjónustkjarni Suðurlands. Sveitarfélagið hefur upp á margt annað að bjóða en verslanir, gistingu og veitingastaði. Þéttbýliskjarnarnir þrír, Selfoss, Eyrarbakki og Stokkseyri eru landfræðilega mikilvægir með tilliti til samgangna og verslunar fyrr á öldum og svo er enn, þá staðreynd er svo hægt að tengja með beinum hætti við menningarsögulegt mikilvægi staðanna og mismunandi þýðingu þeirra fyrir sunnlenskt samfélag þá og nú. Í rannsókninni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem fyrirliggjandi gögn voru notuð ásamt viðtölum við tvo aðila sem voru valdir með markmiðsúrtaki. Unnið var með framboðsmódel fræðimannsins Gunn (2002) til þess að varpa ljósi á það hvað það er sem sveitarfélagið þurfi helst að huga að í uppbyggingu ferðaþjónustu. Þá var skipulagsrit fyrir gerð ferðamálastefnu skoðað með tilliti til þróunar stefnumótunar hjá sveitarstjórn. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að mikilvægar grunnstoðir til ferðaþjónustu eru til staðar en vöntun er á góðri stefnumótun til að hægt sé að þróa áfangastaðinn Árborg áfram og auka aðdráttarafl hans og ímynd. Lykilorð: stefnumótun, stefnumótun í ferðaþjónustu, Sveitarfélagið Árborg, menningartengd ferðaþjónusta, áfangastaður. The goal of this study is to explore the status of tourism in the Municipality of Árborg, its tourism planning and how the ...